Fotbolti.net
03.09.23 - 18:14
Sverrir Örn Einarsson

Aron Elís: Vissum alveg hvað þeir myndu koma með

Auglýsing
Aron Elís Þrándarson

Aron Elís Þrándarson

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Víkingur bar siguorð af lið Fram í Úlfarsárdal fyrr í dag en lokatölur urðu 3-2 Víkingum í vil. Mikill vindur var á vellinum og aðstæður nokkuð erfiðar. Aron Elís Þrándarson leikmaður Víkinga mætti í viðtal að leik loknum og fékk spurninguna. Tæpara en það þurfti að vera?
„Jú mér fannst það, sérstaklega eftir að við komumst 2-1 yfir. Voru vissulega erfiðar aðstæður og Fram að berjast fyrir lífi sínu þannig að við við vissum að þetta yrði erfitt.“

Lið Fram var mjög sprækt í leiknum og veitti toppliði Víkinga verðuga mótspyrnu og meira til. Var eitthvað í leik þeirra sem kom Aroni á óvart?

„Nei, við vissum alveg hvað þeir myndu koma með. Þeir eru mjög beinskeyttir og fara mjög mikið á bakvið vörnina og reyna að vinna seinni boltann og eru að fá ágætis sénsa út úr því. Við vorum bara ekki alveg nógu klárir í nokkrum atriðum og þeir skora allavega seinna markið nokkuð auðveldlega.“

Aron sem á yngri árum var eitt helsta sóknarvopn Víkinga áður en hann fór í atvinnumennsku árið 2014 hefur verið að skora fyrir liðið að undanförnu og gerði sitt fjórða mark í deild og bikar í dag. Í fyrsta sinn kom markið á þessu tímabili kom markið þó ekki með skalla.

„Já boltinn datt fyrir mig í dag í teignum sem var bara geggjað og við höldum áfram að vinna.“

Sagði Aron en allt viðtalið við hann má sjá hér að ofan.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.