03.09.26 - 16:52
Ívan Guðjón Baldursson
Martinelli seldur fyrir metfé (Staðfest)

Mynd: Al Hilal

Mynd: EPA

Mynd: Al Hilal
Brasilíski kantmaðurinn Gabriel Martinelli er búinn að skipta yfir til Al-Hilal í Sádi-Arabíu eftir að hafa orðið Englandsmeistari með Arsenal á síðustu leiktíð.

TENGT EFNI
Stærsta sala í sögu Englandsmeistaranna
Al-Hilal borgar 60 milljónir punda fyrir Martinelli sem er metfé í sögu Arsenal. Englandsmeistararnir halda þar að auki hlutfalli af endursöluvirði leikmannsins.
Martinelli er 25 ára gamall og kom með beinum hætti að 18 mörkum í 53 leikjum í öllum keppnum á síðustu leiktíð. Hann á 5 mörk í 27 landsleikjum með Brasilíu.
Hjá Al-Hilal mun hann spila með leikmönnum á borð við Theo Hernández, Rúben Neves, Crysencio Summerville og Ollie Watkins.
Martinelli kom í heildina að 98 mörkum í 278 leikjum á sjö árum hjá Arsenal. Hann gekk til liðs við félagið sumarið 2019, þegar hann var nýorðinn 18 ára gamall.

Watkins til Al Hilal (Staðfest)
He chose Blue ???? pic.twitter.com/DqGwvrCipX
— AlHilal Saudi Club (@Alhilal_EN) September 3, 2026

Mynd: EPA