Fotbolti.net
03.10.20 - 17:33
Ívan Guðjón Baldursson

Kjartan Stefáns: Viljum ekki kveðja Íslandsmótið svona

Auglýsing
Kjartan Stefáns: Viljum ekki kveðja Íslandsmótið svona
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Hertz
Kjartan Stefánsson, þjálfari kvennaliðs Fylkis, mætti í viðtal eftir 1-1 jafntefli gegn Stjörnunni í eina leik dagsins í Pepsi Max-deild kvenna.
Fylkir hefur verið án margra leikmanna síðustu vikur vegna Covid-19 en liðið er í fjórða sæti eftir leikinn, með 21 stig eftir 15 umferðir.

„Þetta var arfaslakur fyrri hálfleikur en ágætis seinni hálfleikur hjá okkur. Við byrjuðum ekki leikinn eins og við ætluðum að gera en erum sátt með að hafa unnið okkur inn í hann," sagði Kjartan.

„Við erum búin að vera í smá vanda með sóttkví og slíkt og það hefur einkennt vikuna. Við erum öll sammála um að vonandi heldur Íslandsmótið áfram en ef þetta er lokaleikur þá viljum við ekki kveðja Íslandsmótið svona, þetta er það sem ég sagði við stelpurnar í hálfleik."

Markmið Fylkis er að vinna baráttuna um þriðja sætið en Selfoss situr í því sæti sem stendur, einu stigi fyrir ofan Fylki.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.