Fotbolti.net
03.11.26 - 23:06
Brynjar Ingi Erluson

Carrick: Ég er ekki með neina kristalkúlu

Michael Carrick leyfði sér að brosa í kvöld

Michael Carrick leyfði sér að brosa í kvöld

Canon

Mynd: EPA

Meistaradeild
Michael Carrick, stjóri Manchester United, segir að liðið hafi verðskuldað 3-2 sigurinn á Roma á Old Trafford í kvöld.
Meistaradeildin: Þungu fargi létt af Carrick og Man Utd - PSG skoraði sex
TENGT EFNI

Meistaradeildin: Þungu fargi létt af Carrick og Man Utd - PSG skoraði sex

Carrick bjóst alltaf við erfiðum leik gegn einu heitasta liði Evrópu, en þrátt fyrir að Roma hefði komist í 2-0 forystu missti hann aldrei trúna á að United gæti snúið leiknum sér í vil.

„Þetta var erfiður leikur. Mér fannst við byrja ágætlega, en við vissum að þetta yrði erfitt verkefni. Þeir höfðu aðeins tapað einum leik á öllu tímabilinu og eru með mjög gott lið.“

„Við höfðum rætt hvernig við vildum nálgast leikinn og þetta fór ágætlega af stað, en síðan kom markið eins og þruma úr heiðskíru lofti. Við bjuggum sjálfir til vandræði fyrir okkur og það er kannski skiljanlegt miðað við hvernig gengið hefur verið. Það gætti ákveðinnar taugaveiklunar á köflum.“

„Mér fannst við síðan ná að vinna okkur betur inn í leikinn undir lok fyrri hálfleiks og í hálfleiknum talaði ég við strákana um að vera jákvæða. Allt getur gerst hér og ég hef séð það svo oft í gegnum árin. Stundum þarf bara að fá hlutina aðeins með sér og mér fannst strákarnir frábærir í síðari hálfleik.“

„Þeir héldu áfram að berjast og létu mótlætið ekki buga sig. Að lokum fengu þeir nákvæmlega það sem þeir áttu skilið,“
sagði Carrick.

Carrick var þá spurður hvort hann hefði allan tímann haft trú á að United gæti komið til baka.

„Þessi staður hefur eitthvað sérstakt við sig. Það skiptir engu máli í hvaða stöðu þú ert eða hversu vonlaus staðan virðist vera. Stuðningsmennirnir munu alltaf styðja þig af öllum krafti og í kvöld gáfum við þeim loksins eitthvað til að gleðjast yfir.“

„Við gáfum þeim nokkur tækifæri til að bæta við mörkum og þetta var oft á tæpasta vaði. Maður fór að hugsa með sér að enn eitt færið hefði farið forgörðum, en við héldum áfram að leita lausna og fundum þær að lokum.“


Undanfarnar vikur hafa verið afar erfiðar hjá United og óvissa hefur ríkt um framtíð Carrick hjá félaginu. Hann var því spurður hvernig hann sæi framhaldið fyrir sér.

„Ég er ekki með neina kristalkúlu til að sjá hvað gerist næst. Nú einbeitum við okkur að helginni, þar sem við eigum mikilvægan heimaleik gegn Aston Villa. Við þurfum að undirbúa okkur eins vel og mögulegt er fyrir þann leik,“ sagði Carrick í lokin.
Carrick: Ég er ekki með neina kristalkúlu
Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.