03.11.26 - 17:39
Brynjar Ingi Erluson
Evrópumeistararnir í baráttuna um Kroupi

Kroupi skoraði þrettán mörk á síðasta tímabili

Mynd: EPA

Evrópumeistarar Paris Saint-Germain hafa blandað sér í baráttuna um Eli Junior Kroupi, leikmann Bournemouth á Englandi.
Bournemouth hafnaði tilboðum frá Barcelona í Kroupi í sumar, en nú er PSG sagt hafa bæst í hóp áhugasamra félaga. Ousmane Dembele, leikmaður franska félagsins, hefur meðal annars rætt við Kroupi um möguleikann á að ganga til liðs við PSG.
Þeir eru með sama umboðsmann, en hinn tvítugi Kroupi hefur vakið mikla athygli fyrir frammistöðu sína með Bournemouth.
Samkvæmt enskum miðlum vill Bournemouth fá allt að 100 milljónir punda fyrir Kroupi, sem kom til félagsins frá Lorient á síðasta ári.
Hann skoraði þrettán deildarmörk á sínu fyrsta tímabili, en hefur enn ekki náð að opna markareikninginn á þessari leiktíð.