03.11.26 - 13:59
Kári Snorrason
Kemur Viktori Bjarka til varnar - „Setur kannski of mikla pressu á sjálfan sig“

Viktor Bjarki hefur skorað tvö mörk í 16 leikjum á tímabilinu fyrir FCK.

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Bo Svensson.

Mynd: FCK

Viktor Bjarki Daðason hefur farið hægt af stað í markaskorun í upphafi tímabils með FCK. Hann hefur spilað 16 leiki með Kaupmannahafnarliðinu og skorað tvö mörk.
Viktor, sem er fæddur árið 2008, stimplaði sig rækilega inn í lið FCK á síðasta tímabili þar sem hann skoraði alls 10 mörk í 28 leikjum, þar af þrjú í Meistaradeildinni.
Bo Svenson, þjálfari FCK, kom Viktori til varnar er hann var spurður út í U21 landsliðsmanninn þegar hann ræddi við danska fjölmiðla eftir sigur liðsins á SönderjyskE í gær.

„Það verður að vera skilningur fyrir því að hann er bara 18 ára gamall og er að spila sem nía fyrir FCK. Það er mikil pressa sem fylgir því og hann hefur borið hana á herðum sér frá unga aldri.“
„Hann er klár strákur og algjör liðsmaður. Hann setur kannski of mikla pressu á sjálfan sig. Ef hann klúðrar færi finnst honum eins og hann hafi brugðist hinum. En hann hefur ekki brugðist neinum þótt hann hafi klúðrað færi í fótboltaleik,“ sagði Bo og hélt áfram.
„Við viljum vinna titla, spila í Evrópukeppni og þróa unga leikmenn. Það er því eðlilegt að við hjálpum þeim að rífa sig upp þegar illa gengur, og við verðum að sýna að við höfum trú á getu þeirra,“ sagði þjálfarinn jafnframt.
Viktor verður að öllum líkindum í U21 landsliðshópnum sem verður tilkynntur á morgun og mætir Grikklandi í umspili í nóvember um sæti á EM næsta sumar.

Heimild: Bold

Bo Svensson.

Mynd: FCK