Fotbolti.net
03.11.26 - 11:40
Elvar Geir Magnússon

Leikmenn Newcastle fóru ekki eftir fyrirmælum

Matthias Jaissle, stjóri Newcastle.

Matthias Jaissle, stjóri Newcastle.

Canon

Mynd: EPA

Matthias Jaissle, stjóri Newcastle, segir að leikmenn sínir hafi hunsað leikáætlun sína og fyrirmæli í 0-1 tapinu gegn Everton í gær.

Hann segir að það sem hafi verið æft fyrir leikinn hafi ekki verið framkvæmt á keppnisvellinum sjálfum.
Jaissle ósáttur: Augljóst brot í aðdragandanum
TENGT EFNI

Jaissle ósáttur: Augljóst brot í aðdragandanum

„Að vera með langar sendingar var ekki planið. Þetta er eitthvað sem við þurfum að vinna í. Okkur skortir sjálfstraust; til að komast út úr því þurfum við að standa saman. Við þurfum að læra hratt," segir Jaissle.

„Við spiluðum ekki nægilega vel til að ná í úrslit, svo einfalt er það. Við spiluðum ekki okkar leik og það má ekki gerast. Það er mjög erfitt að útskýra þessa frammistöðu eftir að strákarnir stóðu sig frábærlega á æfingum í síðustu viku. Strákarnir lögðu sig fram í leiknum en sjálfstraustið var ekki til staðar."

Newcastle er í þrettánda sæti ensku úrvalsdeildarinnar en ósáttir stuðningsmenn liðsins bauluðu í leikslok í gær.

Premier league - karlar

#LiðLmunStig
1Arsenal11+1028
2Brighton11+1722
3Man City11+822
4Liverpool11+821
5Bournemouth11+418
6Brentford11+917
7Leeds11+517
8Chelsea11016
9Everton11-216
10Tottenham11+115
11Hull City11+214
12Aston Villa11-314
13Newcastle11-313
14Coventry11-812
15Fulham11-211
16Ipswich Town11-711
17Nott. Forest11-69
18Sunderland11-99
19Man Utd11-98
20Crystal Palace11-157
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.