Fotbolti.net
03.11.26 - 08:00
Ívan Guðjón Baldursson

Jaissle ósáttur: Augljóst brot í aðdragandanum

Jaissle ósáttur: Augljóst brot í aðdragandanum
Canon

Mynd: EPA

Matthias Jaissle þjálfari Newcastle var ósáttur með frammistöðu lærlinga sinna í tapi á heimavelli gegn Everton í gærkvöldi.
Þetta var annað tap Newcastle gegn Everton á fjórum dögum eftir að hafa heimsótt liðið í deildabikarnum fyrir helgi. Thierno Barry skoraði eina mark leiksins í upphafi síðari hálfleiks og skrifast það að stórum hluta á Lukas Hornicek markvörð.

„Við spiluðum ekki nægilega vel til að ná í úrslit, svo einfalt er það. Við spiluðum ekki okkar leik og það má ekki gerast. Það er mjög erfitt að útskýra þessa frammistöðu eftir að strákarnir stóðu sig frábærlega á æfingum í síðustu viku. Strákarnir lögðu sig fram í leiknum en sjálfstraustið var ekki til staðar," sagði Jaissle.

„Við vorum ekki nægilega hugrakkir með boltann og spiluðum alltof oft langt upp völlinn í staðinn fyrir að spila okkur úr pressunni með stuttum sendingum. Við greinum þetta á næstu dögum og finnum úrbætur fyrir leikinn gegn Fulham, við verðum að bæta okkur strax.

„Strákarnir verða að trúa að þeir geti spilað leikstílinn sem við viljum spila. Við sköpuðum ekki nógu mikið og fengum klaufalegt mark á okkur, en að mínu mati var augljóslega brotið á Fabian Schär í aðdragandanum."


Barry setti handlegginn út og hæfði Schär sem lagðist í jörðina innan vítateigs, en ekkert var dæmt. Barry kláraði sóknina með marki á meðan Schar lá eftir og ákvað VAR-teymið ekki að skerast í leikinn þar sem snertingin þótti ekki nægilega mikil.

„Við erum að ganga í gegnum erfiðan kafla og eina leiðin í gegnum þetta er sem liðsheild."

Jaissle ræddi einnig um baulið sem mátti heyrast frá áhorfendapöllunum eftir lokaflautið.

„Ég get skilið stuðningsmenn og raunveruleikinn er að þetta er á minni ábyrgð. Það er margt sem við þurfum að bæta við okkar leik."

England: Newcastle tapaði aftur gegn Everton
TENGT EFNI

England: Newcastle tapaði aftur gegn Everton

Jaissle ósáttur: Augljóst brot í aðdragandanum
Canon

Mynd: EPA

Jaissle ósáttur: Augljóst brot í aðdragandanum
Canon

Mynd: Newcastle United

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.