Fotbolti.net
03.11.26 - 19:40
Brynjar Ingi Erluson

Meistaradeildin: Rússinn kláraði Stuttgart á þremur mínútum

Batrakov skoraði bæði mörk Galatasaray

Batrakov skoraði bæði mörk Galatasaray

Canon

Mynd: EPA

Meistaradeild
Tyrklandsmeistarar Galatasaray unnu 2-0 sigur á Stuttgart í Istanbúl í kvöld í fjórðu umferð deildarkeppni Meistaradeildarinnar.
Galatasaray var í leit að öðrum sigri sínum í deildarkeppni Meistaradeildarinnar og byrjaði leikinn af miklum krafti.

Rússneski landsliðsmaðurinn Alexey Batrakov gerði út um leikinn á aðeins þremur mínútum.

Heimamenn léku boltanum skemmtilega sín á milli við vítateig Stuttgart áður en varnarmaður gestanna náði að hreinsa frá. Hreinsunin fór þó ekki lengra en til Batrakov, sem fékk boltann innan teigs og skoraði með góðu skoti í hægra hornið.

Aðeins þremur mínútum síðar var Batrakov aftur á ferðinni. Davinson Sanchez átti þá glæsilega sendingu inn fyrir vörn Stuttgart á Rússann, sem renndi boltanum á milli fóta markvarðarins og í netið.

Stuttgart sótti í sig veðrið í síðari hálfleik og fór að ógna marki Galatasaray af meiri krafti. Gestirnir fengu eitt mark dæmt af sér og fóru auk þess illa með dauðafæri.

Lokatölur í Istanbúl urðu 2-0 fyrir Galatasaray, sem er nú með sex stig í deildarkeppninni, á meðan Stuttgart hefur sjö stig.

Issa Doumbia reyndist hetja Sporting í 1-0 sigri liðsins á Shakhtar á Stamford Bridge í Lundúnum.

Doumbia skoraði sigurmarkið á 59. mínútu. Hann fékk þá boltann fyrir utan vítateiginn og sendi á samherja sem lyfti honum inn í teig. Boltinn hrökk af varnarmanni og beint til Doumbia, sem nýtti tækifærið og kom honum í netið.

Sporting hefur farið frábærlega af stað í Meistaradeildinni og er nú með níu stig eftir fjóra leiki, á meðan Shakhtar hefur fjögur stig.

Galatasaray 2 - 0 Stuttgart
1-0 Alexey Batrakov ('12 )
2-0 Alexey Batrakov ('15 )

Shakhtar D 0 - 1 Sporting
0-1 Issa Doumbia ('59 )
Issa Doumbia var hetja Sporting

Issa Doumbia var hetja Sporting

Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.