Fotbolti.net
03.11.26 - 17:43
Brynjar Ingi Erluson

Miðjumaður Arsenal til Atlético?

Miðjumaður Arsenal til Atlético?
Canon

Mynd: EPA

Spænska félagið Atlético Madríd íhugar að fá Mikel Merino, miðjumann Arsenal, á láni í janúarglugganum, en þetta kemur fram í Guardian.
Hinn þrítugi Merino vill fá meiri spilatíma en hann hefur fengið hjá Arsenal og er hann í miklum metum hjá Diego Simeone, þjálfara Atlético.

Simeone er sérstaklega hrifinn af fjölhæfni Merino, sem hefur reynst bæði Arsenal og spænska landsliðinu mikilvægur undanfarin ár.

Samkvæmt Guardian gæti Atlético lagt fram lánstilboð í Merino með kauprétti upp á 30 milljónir evra næsta sumar.

Afstaða Arsenal til málsins liggur ekki fyrir, en erfitt er að sjá Lundúnaliðið samþykkja að láta Merino fara á miðju tímabili þegar félagið er í baráttu um stærstu titlana.

Á þessu tímabili hefur Merino leikið þrettán leiki og skorað eitt mark, en aðeins fengið um 400 mínútur inni á vellinum.

Hann var einnig í aukahlutverki á síðustu leiktíð þegar Arsenal varð Englandsmeistari og komst í úrslit Meistaradeildarinnar. Þrátt fyrir takmarkaðan spilatíma kom hann að níu mörkum í 34 leikjum, en alls lék hann um 1.900 mínútur á tímabilinu.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.