Fotbolti.net
03.11.26 - 15:10
Elvar Geir Magnússon

Palace áfrýjar rauða spjaldinu - Sjáðu brotið hjá Mateta

Jean-Philippe Mateta.

Jean-Philippe Mateta.

Canon

Mynd: EPA

Crystal Palace hefur áfrýjað rauða spjaldinu sem Jean-Philippe Mateta fékk í tapleiknum gegn Tottenham á laugardaginn.

Dómarinn Michael Oliver sýndi framherjanum beint rautt spjald fyrir brot á Micky van de Ven eftir aðeins þrettán mínútna leik, þegar staðan var enn 0-0. Oliver gaf upphaflega gult spjald en það var uppfært eftir VAR-skoðun. Brotið má sjá hér fyrir neðan.

Að mati Palace var brotið óvart og Mateta sá ekki Van de Ven þegar hann ætlaði í boltann. Franski landsliðsmaðurinn á yfir höfði sér þriggja leikja bann en Palace vonast til að bannið verði látið niður falla eða stytt.

Tottenham vann leikinn 2-0 manni fleiri. Palace mætir Liverpool um helgina en mikil pressa er á Pierre Sage, stjóra Palace, eftir vonbrigðabyrjun á tímabilinu.
England: Innsiglaði sigur Tottenham með skrautlegu marki
TENGT EFNI

England: Innsiglaði sigur Tottenham með skrautlegu marki

Premier league - karlar

#LiðLmunStig
1Arsenal9+924
2Man City9+1021
3Brighton9+1719
4Chelsea9+416
5Liverpool9+215
6Brentford9+714
7Everton9013
8Bournemouth9+112
9Tottenham9012
10Aston Villa9-312
11Hull City9+111
12Leeds9+111
13Newcastle9-311
14Ipswich Town9-411
15Fulham9-29
16Coventry9-79
17Man Utd9-57
18Crystal Palace9-127
19Nott. Forest9-66
20Sunderland9-105
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.