Fotbolti.net
03.11.26 - 17:48
Brynjar Ingi Erluson

Saliba ferðaðist með Arsenal til Tékklands

Saliba ferðaðist með Arsenal til Tékklands
Canon

Mynd: EPA

Franski varnarmaðurinn William Saliba er í leikmannahópi Arsenal sem ferðaðist til Tékklands fyrir leikinn gegn Slavia Prag í Meistaradeildinni á morgun.
Saliba mættur aftur til æfinga
TENGT EFNI

Saliba mættur aftur til æfinga

Saliba hefur verið frá keppni frá upphafi tímabilsins vegna erfiðra bakmeiðsla sem hann varð fyrir á heimsmeistaramótinu í sumar.

Arsenal hefur gengið frábærlega án hans, ekki síst eftir komu Ezri Konsa, en nú berast enn betri tíðindi fyrir Lundúnaliðið. Saliba er byrjaður að æfa á ný og ferðaðist með liðinu til Prag fyrir leikinn gegn Slavia.

Saliba er einn mikilvægasti leikmaður Arsenal og endurkoma hans yrði mikil búbót fyrir liðið, sem stefnir á að vinna bæði ensku úrvalsdeildina og Meistaradeildina á þessu tímabili.

Arsenal hefur fengið sjö stig úr fyrstu þremur leikjum deildarkeppninnar á meðan Slavia er aðeins með eitt stig.


Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.