Fotbolti.net
03.11.26 - 15:06
Kári Snorrason

Spánverji aðstoðar Badu með Vestra (Staðfest)

Spánverji aðstoðar Badu með Vestra (Staðfest)
Canon

Mynd: Vestri

Lengjudeildin
Vestri hefur ráðið spænska þjálfarann, Raúl Naranjo, sem nýjan aðstoðarþjálfara liðsins. Hann mun koma til með að aðstoða Daniel Badu sem tók við liðinu fyrir um ári síðan.

Naranjo er væntanlegur vestur í byrjun janúar en hann kemur til Vestra frá Cork City, meisturunum í írsku B-deildinni, en hann var bæði aðstoðarþjálfari og leikgreinandi liðsins.

Hann hefur jafnframt þjálfað á Spáni og í Sádí-Arabíu.
Svíinn Jonathan Oyal var aðstoðarmaður Daniel Badu í sumar en hann fór frá liðinu eftir tímabil. Vestri endaði í 9. sæti Lengjudeildarinnar í sumar.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.