03.11.26 - 20:34
Brynjar Ingi Erluson
Stuðningsmenn Man Utd brjálaðir - Köstuðu tennisboltum í átt að leikmönnum

Roma er 2-0 yfir á Old Trafford

Mynd: EPA

Roma er 2-0 yfir á Old Trafford

Mynd: EPA

Stuðningsmenn Manchester United eru komnir með upp í kok af slæmu gengi liðsins og hafa nú gripið til þess ráðs að kasta tennisboltum og öðrum hlutum inn á völlinn á Old Trafford í mótmælaskyni.
Manchester United er komið 2-0 undir gegn Roma í Meistaradeildinni og stefnir allt í að liðið fari tíunda leikinn í röð án sigurs.
Þetta er eitt versta gengi í sögu félagsins og stuðningsmenn eru greinilega komnir með upp í kok af frammistöðu liðsins.
Stuðningsmenn á Stretford End, þar sem margir af hörðustu stuðningsmönnum United halda til, eru farnir að kasta tennisboltum og öðrum hlutum inn á völlinn og í átt að eigin leikmönnum til að mótmæla ástandinu.
„Við viljum Glazer-fjölskylduna burt!“ hafa þeir hrópað, en með því krefjast þeir þess að fjölskyldan selji hlut sinn í félaginu.
Það er langt frá því að vera ný krafa, enda hafa stuðningsmenn United lengi mótmælt eignarhaldi Glazer-fjölskyldunnar, allt frá því að hún eignaðist félagið.

Matheus Cunha and Diogo Dalot throwing tennis balls back after the game is stopped.
— United Zone (@ManUnitedZone) November 3, 2026
[@StevenRailston] https://t.co/wMt6x6DGQi