Fotbolti.net
03.11.26 - 17:53
Brynjar Ingi Erluson

Svona lítur fyrsti landsliðshópur Argentínu án Messi út

Scaloni er búinn að velja hópinn

Scaloni er búinn að velja hópinn

Canon

Mynd: EPA

Lionel Scaloni, þjálfari argentínska landsliðsins, hefur valið leikmannahóp sinn fyrir vináttulandsleikina gegn Kosta Ríka og Úrúgvæ, en þetta er fyrsti landsliðshópur Argentínu síðan Lionel Messi lagði landsliðsskóna á hilluna.
Messi kvaddi argentínska landsliðið með pomp og prakt í stórsigri gegn Benín í síðasta mánuði. Það voru enda stór tímamót fyrir argentínsku þjóðina, sem var að kveðja sinn besta fótboltamann frá upphafi og einn þann besta í sögu íþróttarinnar.

Það verður því ærið verkefni fyrir Scaloni að finna nýjan leikmann til að byggja liðið í kringum, en búist er við að Nico Paz taki við keflinu af Messi.

Paz er að sjálfsögðu í hópnum ásamt öðrum lykilmönnum á borð við Enzo Fernandez, Alexis Mac Allister og Julian Alvarez. Emiliano Martínez, markvörður Chelsea, hefur verið frá síðustu vikur vegna kinnbeinsbrot, en hann er klár í slaginn á ný.

Hópurinn:
Emiliano Martinez (Chelsea)
Geronimo Rulli (Manchester City)
Juan Musso (Atletico Madrid)
Santiago Beltran (River Plate)
Gonzalo Montiel (River Plate)
Agustin Giay (Palmeiras)
Aaron Anselmino (Chelsea)
Mariano Troilo (Parma)
Leonardo Balerdi (Roma)
Lisandro Martinez (Manchester United)
Facundo Medina (Bayer Leverkusen)
Nicolas Tagliafico (Lyon)
Roman Vega (Zenit)
Ezequiel Fernandez (Bayer Leverkusen)
Maximo Perrone (Como)
Exequiel Palacios (Ipswich Town)
Valentin Barco (Chelsea)
Alexis Mac Allister (Liverpool)
Enzo Fernandez (Chelsea)
Nico Paz (Como)
Matias Soule (Roma)
Franco Mastantuono (Fiorentina)
Giuliano Simeone (Atletico Madrid)
Gianluca Prestianni (Benfica)
Thiago Almada (River Plate)
Jose Manuel Lopez (Palmeiras)
Santiago Gomez (Roma)
Julian Alvarez (Atletico Madrid)

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.