Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   mán 04. janúar 2021 23:59
Brynjar Ingi Erluson
Spánn: Valencia gerði jafntefli á heimavelli
Maxi Gomez fagnar marki sínu
Maxi Gomez fagnar marki sínu
Mynd: Getty Images
Valencia 1 - 1 Cadiz
0-1 Anthony Lozano ('58 )
1-1 Maxi Gomez ('79 )

Valencia og Cadiz gerðu 1-1 jafntefli í spænsku deildinni í kvöld en bæði mörkin komu í síðari hálfleiknum.

Anthony Lozano kom Cadiz óvænt yfir gegn Valencia á 58. mínútu með stórbrotinni hjólhestaspyrnu af stuttu færi.

Úrúgvæski framherjinn Maxi Gomez jafnaði metin ellefu mínútum fyrir leikslok og lokatölur því 1-1.

Valencia er með sextán stig í 17. sæti en Cadiz með tuttugu stig í 10. sæti.
Athugasemdir
banner
banner