Fotbolti.net
04.03.14 - 16:43
Magnús Már Einarsson

Kristján Flóki: Bjóst við betra liði hjá Svíum

Auglýsing
Kristján Flóki í leiknum í dag.

Kristján Flóki í leiknum í dag.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

,,Ég bjóst við betra liði hjá Svíum en við vorum hins vegar góðir,\" sagði Kristján Flóki Finnbogason eftir 3-0 sigur U19 ára landsliðsins á Svíum í dag.

Kristján Flóki var öflugur í íslenska liðinu en hann skoraði annað markið í dag. U19 ára liðið mætir Svíum aftur á fimmtudag klukkan 9:45 í Egilshöll.

,,Ég held að þeir mæti með betra liði og reyni að koma sterkir til baka,\" sagði Kristján Flóki um þann leik.
Kristján Flóki leikur með FC Kaupmannahöfn og hann hefur spilað með unglingaliði félagsins í Meistaradeildinni gegn Real Madrid, Juventus og Galatasaray.

,,Það hefur verið frábær reynsla. Það er ævintýri að spila í Meistaradeildinni,\" sagði Kristján Flóki.

Hér að ofan má sjá viðtalið í heild sinni.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.