Fotbolti.net
04.05.21 - 11:40
Fótbolti.net

Tíu yfir 30 sem voru frábærir í fyrstu umferð

Það voru reynsluboltarnir í Pepsi Max-deildinni sem voru aðalmennirnir í fyrstu umferð deildarinnar. Aðeins sjö mörk voru skoruð en meðalaldur markaskorara var meiri en 32 ár.

Hver ástæðan sé fyrir því að það séu 'gömlu kallarnir' sem draga vagninn í byrjun leyfum við kaffistofum landsins að rýna í en hér eru allavega tíu leikmenn sem eru komnir yfir 30 ára aldurinn og voru frábærir í fyrstu umferð.
<b>Sölvi Geir Ottesen (37) - Víkingur:</b> Fyrstan ber að nefna Sölva, leikmann umferðarinnar. Stríðsmaðurinn í Fossvogi skoraði sigurmarkið gegn Keflavík og var hrikalega öflugur í öftustu línu.

Sölvi Geir Ottesen (37) - Víkingur: Fyrstan ber að nefna Sölva, leikmann umferðarinnar. Stríðsmaðurinn í Fossvogi skoraði sigurmarkið gegn Keflavík og var hrikalega öflugur í öftustu línu.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

<b>Óskar Örn Hauksson (36) - KR:</b> Eins og gott rauðvín. Ótrúlegur leikmaður sem braut ísinn í sigri KR gegn Breiðabliki í stórleik umferðarinnar.

Óskar Örn Hauksson (36) - KR: Eins og gott rauðvín. Ótrúlegur leikmaður sem braut ísinn í sigri KR gegn Breiðabliki í stórleik umferðarinnar.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

<b>Matthías Vilhjálmsson (34) - FH:</b> Stimplar sig glæsilega aftur inn í íslenska boltann og skoraði annað mark FH í sigri gegn Fylki í Árbænum. Velkominn heim!

Matthías Vilhjálmsson (34) - FH: Stimplar sig glæsilega aftur inn í íslenska boltann og skoraði annað mark FH í sigri gegn Fylki í Árbænum. Velkominn heim!

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

<b>Brynjar Hlöðversson (32) - Leiknir:</b> Þessi mikli keppnismaður var frábær í vörn nýliða Leiknis í markalausu jafntefli gegn Stjörnunni. Fékk dauðafæri til að kóróna frammistöðu sína með sigurmarki en nýtti það ekki.

Brynjar Hlöðversson (32) - Leiknir: Þessi mikli keppnismaður var frábær í vörn nýliða Leiknis í markalausu jafntefli gegn Stjörnunni. Fékk dauðafæri til að kóróna frammistöðu sína með sigurmarki en nýtti það ekki.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

<b>Arnór Sveinn Aðalsteinsson (35) - KR:</b> Geggjaður í vörn KR gegn Breiðabliki. Rúnar Kristinsson segir hann besta miðvörð deildarinnar... við heyrum engin mótmæli.

Arnór Sveinn Aðalsteinsson (35) - KR: Geggjaður í vörn KR gegn Breiðabliki. Rúnar Kristinsson segir hann besta miðvörð deildarinnar... við heyrum engin mótmæli.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

<b>Þórður Ingason (33) - Víkingur:</b> Ingvar Jóns er á meiðslalistanum en Þórður steig frábærlega inn gegn Keflavík og átti flotta frammistöðu. Hélt markinu hreinu.

Þórður Ingason (33) - Víkingur: Ingvar Jóns er á meiðslalistanum en Þórður steig frábærlega inn gegn Keflavík og átti flotta frammistöðu. Hélt markinu hreinu.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

<b>Steven Lennon (33) - FH:</b> Sóknarmaður FH-inga sýnir gæði sín ár eftir ár. Kom FH yfir af vítapunktinum gegn Fylki.

Steven Lennon (33) - FH: Sóknarmaður FH-inga sýnir gæði sín ár eftir ár. Kom FH yfir af vítapunktinum gegn Fylki.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

<b>Pálmi Rafn Pálmason (36) - KR:</b> Afskaplega öflugur á miðju KR í sigrinum gegn Breiðabliki.

Pálmi Rafn Pálmason (36) - KR: Afskaplega öflugur á miðju KR í sigrinum gegn Breiðabliki.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

<b>Steinþór Már Auðunsson (31) - KA:</b> Stubbur spilaði sinn fyrsta leik í efstu deild vegna meiðsla Jajalo. Hélt markinu hreinu og varði dauðafæri sem HK fékk. 0-0 enduðu leikar og Stubbur getur gengið sáttur frá borði.

Steinþór Már Auðunsson (31) - KA: Stubbur spilaði sinn fyrsta leik í efstu deild vegna meiðsla Jajalo. Hélt markinu hreinu og varði dauðafæri sem HK fékk. 0-0 enduðu leikar og Stubbur getur gengið sáttur frá borði.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

<b>Kennie Chopart (30) - KR:</b> Skoraði af löngu færi gegn Breiðabliki. KR-ingar eiga fjóra leikmenn á þessum lista. Gamlir en rosalega góðir!

Kennie Chopart (30) - KR: Skoraði af löngu færi gegn Breiðabliki. KR-ingar eiga fjóra leikmenn á þessum lista. Gamlir en rosalega góðir!

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.