10.11.26 - 17:45
Brynjar Ingi Erluson
Berrada og Wilcox halda störfum sínum hjá Man Utd

Omar Berrada verður áfram samkvæmt Telegraph

Mynd: EPA

Jason Wilcox hefur verið harðlega gagnrýndur

Omar Berrada, framkvæmdastjóri Manchester United, og Jason Wilcox, yfirmaður fótboltamála hjá félaginu, munu halda störfum sínum þrátt fyrir slakan árangur liðsins. Þetta kemur fram í Telegraph.

TENGT EFNI
Á leið til Mónakó til að ganga frá brottrekstri Carrick
Berrada og Wilcox ferðuðust til Mónakó í dag til að ganga frá brottrekstri Michael Carrick, þjálfara United.
Liðið hefur ekki unnið deildarleik síðan í lok ágúst og situr í fallsæti eftir tíu umferðir.
Carrick stóð sig frábærlega þegar hann tók við stjórn United í byrjun ársins og kom liðinu aftur í Meistaradeildina. Byrjunin á þessu tímabili hefur hins vegar verið langt undir væntingum og hefur félagið nú ákveðið að skipta um stjóra.
Stjórn United hefur einnig sætt harðri gagnrýni, meðal annars fyrir að hafa ekki styrkt leikmannahópinn nægilega vel fyrir tímabilið. Lisandro Martínez, leikmaður United, gagnrýndi Wilcox harðlega fyrir að hafa ekki gert nóg á félagaskiptamarkaðnum.
Telegraph greinir hins vegar frá því að hvorki Wilcox né Berrada þurfi að óttast um starf sitt.
Þeir njóta enn fulls trausts Sir Jim Ratcliffe, hluthafa United, og verður það í þeirra höndum að finna arftaka Carrick.
Mauricio Pochettino, þjálfari bandaríska landsliðsins, er sagður líklegasti kosturinn í stöðunni. Það gæti hins vegar kostað United um átta milljónir punda að fá hann lausan undan samningi og yrði kostnaðurinn enn meiri ef félagið vill einnig fá aðstoðarteymi hans.
Pochettino skrifaði nýlega undir framlengingu á samningi sínum við bandaríska fótboltasambandið, en hann hefur lengi dreymt um að snúa aftur í enska boltann og gæti það nú orðið að veruleika.
Antonio Conte, Eddie Howe og Julian Nagelsmann hafa einnig verið orðaðir við starfið á undanförnum vikum.