Fotbolti.net
10.11.26 - 17:47
Brynjar Ingi Erluson

Leikmaður Bournemouth valinn í franska landsliðið

Leikmaður Bournemouth valinn í franska landsliðið
Canon

Mynd: EPA

Franski sóknarmaðurinn Eli Junior Kroupi hefur verið valinn í franska A-landsliðið í fyrsta sinn af Zinedine Zidane.
Marcus Thuram, framherji Inter, glímir við meiðsli og hefur þurft að draga sig úr landsliðshópnum. Zidane hefur því ákveðið að kalla Kroupi inn í hans stað.

Þetta er í fyrsta sinn sem Kroupi er valinn í A-landsliðið, en frammistaða hans með Bournemouth í ensku úrvalsdeildinni hefur vakið mikla athygli.

Kroupi gat valið á milli þess að spila fyrir Frakkland, Fílabeinsströndina eða Portúgal, en ákvað á dögunum að velja Frakkland. Nú hefur hann fengið sitt fyrsta tækifæri með landsliðinu.

Hann gæti því þreytt frumraun sína í komandi leikjum Frakka gegn Ítalíu og Tyrklandi í Þjóðadeildinni.

Kroupi er tvítugur og hefur leikið með Bournemouth í rúmt ár, en hann kom til félagsins frá Lorient eftir frábært tímabil í frönsku B-deildinni þar sem hann skoraði 23 mörk.

Framherjinn hélt uppteknum hætti á sinni fyrstu leiktíð með Bournemouth og skoraði þrettán mörk í ensku úrvalsdeildinni.


Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.