Fotbolti.net
10.11.26 - 18:04
Brynjar Ingi Erluson

Jón Vignir heim í Selfoss (Staðfest)

Jón Vignir heim í Selfoss (Staðfest)
Canon

Mynd: Selfoss

Selfoss hefur gengið frá kaupum á miðjumanninum Jóni Vigni Péturssyni frá Aftureldingu, en hann er þar með kominn aftur heim og skrifaði í dag undir tveggja ára samning við félagið.
Jón Vignir er 23 ára gamall og uppalinn Selfyssingur, en hann lék með Aftureldingu í Lengjudeildinni á síðustu leiktíð.

Nú er hann kominn aftur heim á Selfoss, sem greiddi Aftureldingu fyrir að fá hann aftur í sínar raðir.

Jón átti þátt í að koma Aftureldingu upp í Bestu deildina og í úrslit Mjólkurbikarsins á nýafstöðnu tímabili og mun nú leggja Selfyssingum lið, en þeir tryggðu sér sæti í Lengjudeildinni eftir frábæra frammistöðu í 2. deildinni.

Miðjumaðurinn var ein af burðarásum Selfossliðsins áður en hann hélt til Aftureldingar og bar meðal annars fyrirliðabandið frá árinu 2023. Það eru því mikil gleðitíðindi fyrir Selfyssinga að fá hann aftur heim.

„Ég vil þakka Aftureldingu og Mosó samfélaginu í heild fyrir frábært sumar. Það var heiður að vera hluti af þessum hópi. Ég tek margt með mér og óska liðinu alls hins besta áfram. Takk fyrir mig,“ sagði Jón Vignir í kveðju sinni til Aftureldingu.



Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.