Fotbolti.net
10.11.26 - 17:30
Kári Snorrason

Van Dijk sultuslakur þrátt fyrir óvissu um framtíðina

Van Dijk sultuslakur þrátt fyrir óvissu um framtíðina
Canon

Mynd: EPA

Virgil van Dijk, fyrirliði Liverpool, segist vera pollrólegur þótt samningur hans við félagið renni út í sumar. Búist er við að hann fari í viðræður við félagið á næstu vikum og mánuðum.

„Ég vil halda áfram að spila og sjá hvað tímabilið ber í skauti sér. Mér hefur liðið frábærlega hérna. Ef samningurinn verður framlengdur þá verður það þannig, annars fer ég annað. Ég er ekkert að stressa mig á þessu,“ sagði Van Dijk eftir sigurinn á Crystal Palace um helgina.
Van Dijk, sem er 35 ára, hefur spilað hverja einustu mínútu með Liverpool í ensku úrvalsdeildinni á tímabilinu.

Hann hefur þó glímt við smávægileg meiðsli undanfarnar vikur og dró sig því úr hollenska landsliðshópnum fyrir landsleikjagluggann.

Hollendingurinn skrifaði síðast undir nýjan samning við Liverpool í apríl 2025, þegar hann samdi til tveggja ára.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.