Manchester United er reiðubúið að eyða 150 milljónum punda í þrjá nýja miðjumenn á markaðnum í sumar. Daily Mail greinir frá þessum tíðindum.
Mail heldur því fram að United hafi eyrnamerkt 80 milljónir punda til þess að leysa hlutverk Casemiro sem mun yfirgefa félagið þegar samningur hans rennur út í sumar.
Man Utd veit það að Elliot Anderson, leikmaður Nottingham Forest, kemur til með að kosta í kringum 100 milljónir punda og er líklegast að hann fari til nágranna þeirra í Manchester City.
Carlos Baleba, Sandro Tonali, Adam Wharton og Aurelien Tchouameni eru aðrir sem hafa verið nefndir, en áhugi United á Tonali hefur dvínað og þá vill Tchouameni framlengja samning sinn við Real Madrid.
United er þá reiðubúið að eyða 40 milljónum punda í leikmann í stað Manuel Ugarte, það er að segja ef sanngjarnt verð fæst fyrir Ugarte sem var keyptur frá Paris Saint-Germain fyrir 50 milljónir punda fyrir tveimur árum.
Mateus Fernandes, leikmaður West Ham, hefur verið orðaður við félagið síðustu daga og einnig þeir Alex Scott og Tyler Adams hjá Bournemouth.
Félagið gæti fengið þriðja miðjumanninn inn þrátt fyrir að Kobbie Mainoo hafi framlengt við félagið, en þar kemur til greina að eyða 20 milljónum punda. Shea Charles hjá Southampton er undir smásjá United, en allt mun þetta velta á sölum á öðrum leikmönnum og hvað það mun kosta að styrkja aðrar stöður vallarins.
United mun fá um það bil 100 milljónir punda fyrir að komast í Meistaradeild Evrópu og þá mun það losna við nokkra menn af launaskránni.
Rasmus Hojlund, Marcus Rashford, Andre Onana, Ugarte og mögulega Joshua Zirkzee gætu verið á förum og þá mun launakostnaðurinn lækka verulega þegar þeir Casemiro, Jadon Sancho, Tyrell Malacia og Altay Bayindir yfirgefa félagið.
Sancho, Malacia og Casemiro eru að renna út á samningi, en Bayindir verður að öllum líkindum seldur til Besiktas í Tyrklandi.



