Heimild: Daily Mail
Chris Wheeler íþróttafréttamaður hjá Daily Mail hrósar Michael Carrick fyrir það hvernig hann hefur náð að snúa gengi Manchester United við.
United innsiglaði Meistaradeildarsæti með sigri gegn Liverpool í gær en liðið hefur unnið 10 af 14 leikjum undir stjórn Carrick.
„Þetta var síðasta markmiðið sem Carrick þurfti að klára og hann gerir það þegar þrjár umferðir eru eftir. Það er ekki mikið meira sem hann getur til að sannfæra yfirmenn sína um að hann sé rétti maðurinn til að fá starfið til frambúðar," segir Wheeler.
„Ef þeir ætla að horfa eitthvað annað eftir tímabilið þá yrði það áhætta sem þeir þurfa alls ekki að taka."

Verðlaun
„Eitt af afrekum Carrick síðustu fjóra mánuði er að koma Kobbie Mainoo í gang. Gleymum ekki hvernig Mainoo var höndlaður af Rúben Amorim og nýr samningur leikmannsins í síðustu viku var verðlaun fyrir það hvernig Carrick hefur höndlað hann," segir Wheeler.
„Mainoo fagnaði með því að skora sigurmarkið gegn Liverpool fyrir framan Stretford End."
Eins og skuggi
Wheeler segir hinsvegar að léleg spilamennska Amad Diallo sé áhyggjuefni fyrir Carrick.
„Hann lítur út eins og skugginn af sjálfum sér. Tekinn af velli í hálfleik gegn Brentford á mánudag og kom inn af bekknum gegn Liverpool. Það fyrsta sem hann gerði var að missa boltann og Liverpool refsaði með marki," segir Wheeler.
„Amad hefur ekki verið samur síðan hann kom úr Afríkukeppninni. Hann var einn af fáum sem blómstraði hjá Amorim og einn af fáum sem er slakari eftir að Carrick kom."