Kári Kristjánsson var orðaður við Þrótt í útvarpsþættinum Fótbolti.net á laugardag.
Kári gekk í raðir FH frá uppeldisfélagi sínu, Þrótti Reykjavík, fyrir tímabilið sem var hefjast. Hann hefur ekki verið í sérlega stóru hlutverki í upphafi móts hjá FH og kom hann inn á sem varamaður seint í leiknum gegn Fram í gær.

„Lengjudeildarglugginn er enn opinn og það er hægt að fara úr Bestu deildina í Lengjudeildina. Það er þannig til 6. maí," sagði Elvar Geir Magnússon í útvarpsþættinum Fótbolti.net.
„Ég heyrði sögu, ég held að hún sé staðfest, að Þróttarar séu að vonast til þess að fá Kára Kristjáns aftur úr Krikanum. Félögin hafi fundað og rætt þetta. Þeir eru stórhuga Þróttarar. Miði er möguleiki."
Sigurvin Ólafsson, þjálfari Þróttar, var spurður út í þessar sögur eftir sigur gegn ÍR á dögunum.
„Ég myndi ekkert slá hendinni á móti því. Ég skoða hann eins og aðra leikmenn í efstu deild sem eru mögulega tilbúnir að færa sig. Auðvitað væri frábært að fá Kára aftur heim en við sjáum hvernig gengur á sunnudaginn," sagði Sigurvin og var greinilega með augun á leik FH og Fram í Bestu deildinni í gær.