Juve vill leikmann Man City - Iraola efstur á óskalista Palace - Bernardo Silva á leið til Barcelona
   mán 04. maí 2026 17:30
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Viðtal
Óskar Hrafn um Alexander Rafn: Útiloka ekki að samtalið verði tekið
Leikið frábærlega með KR í byrjun tímabils og hefur skrorað tvö mörk.
Leikið frábærlega með KR í byrjun tímabils og hefur skrorað tvö mörk.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Ekki hægt að kalla þetta skalleinvígi, en hér er Sigurður Breki í baráttunni gegn Val.
Ekki hægt að kalla þetta skalleinvígi, en hér er Sigurður Breki í baráttunni gegn Val.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Alexander Rafn Pálmason er búinn að vinna sig inn í byrjunarlið KR og hefur sýnt frábæra frammistöðu í byrjun Íslandsmóts. Alexander er nýorðinn 16 ára og átti virkilega góðan leik gegn Val á laugardag.

Á síðasta ári samþykkti KR tilboð í miðjumanninn frá danska félaginu Nordsjælland og er áætlað að Alexander fari til Danmerkur 1. júlí í sumar. Um er að ræða stærstu sölu í sögu KR og hæstu upphæð sem danskt félag hefur greitt fyrir íslenskan leikmann.

Þrátt fyrir að það séu tveir mánuðir í að Alexander eigi að fara eru aðdáendur deildarinnar þegar farnir að horfa á þá dagsetningu og vona að Alexander fari ekki strax úr Bestu deildinni. Fótbolti.net ræddi við Óskar Hrafn Þorvaldsson, þjálfara KR, um leikmanninn.

Hefur samtalið um hvort það sé möguleiki að halda honum lengur verið tekið?

Lestu um leikinn: Valur 1 -  4 KR

„Ég hef ekki tekið samtalið við Nordsjælland, við hann eða foreldra hans. Við höfum vissulega hugsað um það, en það er raunverulega ekki komið lengra en það. Planið hans er að fara út 1. júlí, gera sig gildandi með U19 þar, og við höfum ekki leitt hugann að því að fikta eitthvað í því plani, jafnvel þó að hann sé gríðarlega mikilvægur leikmaður hjá okkur."

„En ég ætla ekki að útiloka að menn taki samtalið á einhverjum tímapunkti. Við töluðum um að skoða stöðuna í byrjun maí. Hann er mikilvægur leikmaður okkur, en það þarf að hugsa hvað sé best fyrir hans þróun, hvar hann tekur mestu framförum. Ég myndi halda að hann muni bara halda sínu striki, en ég útiloka ekki að við förum yfir stöðuna á næstu dögum."


Hann er sextán ára, lítur út fyrir að hafa spilað mun lengur í deildinni en í rúmt ár. Hvernig er að sjá það og þarf að halda honum á jörðinni?

„Varðandi fyrri spurninguna þá hættir hann ekkert að koma manni á óvart. Það er alveg rétt að hann spilar leikinn á mjög þroskaðan hátt, hann er oft á tíðum einn af þroskuðustu fótboltamönnunum í KR-liðinu; ákvarðanirnar sem hann tekur og hversu einfaldan fótbolta hann spilar - það er unun að horfa á hann. Ég treysti honum til að spila á miðri miðjunni án nokkurra vandkvæða, hann leysir allar stöður og öll verkefni sem ég bið hann um að gera. Ég hef sagt það áður og get sagt það aftur: það eru forréttindi að þjálfa þennan gæja. Það er yndislegt."

„Það er krefjandi líka, því hann er ógeðslega góður,"
segir Óskar og hlær. „Það er ekki auðvelt að reyna að hjálpa honum að verða betri. Vonandi náum við því og vonandi náum við að hjálpa honum að koma út á eins góðum stað og kostur er."

„Varðandi að halda honum á jörðinni þá þarf ekki einu sinni að hugsa um það. Hann ásamt Sigurði Breka eru tveir af jarðbundnustu unglingum á Íslandi, þvert á kyn og aldur held ég. Það er rosalega lítið vesen á þessum gæjum. Þeir taka saman allt dótið eftir hverja einustu æfingu, það þarf ekki að toga Alexander niður úr einhverjum skýjaborgum."


KR-ingar fundu fyrir því í vetur þegar Alexander og Sigurður voru í verkefnum með unglingalandsliðunum og voru ekki á æfingum með KR.

„Þeir eru jafn mikilvægur hluti af æfingahópnum og Arnór Ingvi og Aron Sig. Það er bara þannig. Framlagið er alltaf svo mikið, það er allt gert svo vel. Ég get líka alveg hrósað þeim því ég veit að þeir ofmetnast ekki. Það er mjög auðvelt að hlaða á þá hrósi, því þeir eru alltaf með lappirnar á jörðinni," segir Óskar Hrafn.


Innkastið - Hemmi svarar og Stjörnuhrap
Slapp
banner
banner
banner