04.06.05 - 08:06
Magnús Már Einarsson
Kovac og Giannichedda til Juventus (Staðfest)

Robert Kovac.

Robert Kovac.

Juventus hefur fengið miðjumanninn Giuliano Giannichedda frítt frá Lazio og varnarmanninn Robert Kovac frá Bayern Munchen en þetta staðfesti Juventus í gær.
,,Þetta hefur verið óvenjulegt tímabil fyrir Juventus og við sönnuðum það að við vorum betir en Milan. Fyrir næsta tímabil er liðið þegar samkeppnishæft og við höfum þegar styrkt liðið með samningum við Kovac og Giannichedda." sagði Luciano Moggi hjá Juventus.
Talið er að ítölsku meistarnir ætli að styrkaj sig en frekar og hefur liðið verið orðað við Andrea Barzagli hjá Palermo og þá gæti Walter Samuel einnig komið frá Real Madrid fari Emerson til Spánar. Moggi staðfesti einnig að Juventus væri ekki lengur á eftir Shabani Nonda framherja Monaco en neitaði þeim sögusögnum að hann hefði fallið á læknisskoðun.
,,Það er ekki satt að hann hafi farið í læknisskoðanir og fallið á þeim. Við litum einfaldlega á hann, en eftir að hafa metið sóknarlínu okkar þá teljum við hana fulkomna svo við ákváðum að hætta við hann. Við getum ekki gert framherja að safngripum. Við munum bara gera nokkrar lagfæringar." Sagði Moggi.
David Trezeguet er ekkert á förum samkvæmt því sem Moggi bætti við í gær en hann sagði ,,Trezeguet mun vera áfram hjá Juve og ég segji það hreint. Við gefumst ekki upp undan pressu. Við ákváðum að vera með honum á næsta tímabili svo David mun vera áfram á næsta tímabili. Sóknarlína okkur mun vera næstum því sú sama, með viðbót í (Adrian) Mutu. Ef eitthvað er þá gæti ég hugsað mér að skoða nokkur tilboð í Marcelo Zalayeta, kannski lánstilboð."