Heimir Hallgríms: Vinnum aldrei ef hugarfarið er ekki 100%
Auglýsing

Heimir Hallgrímsson ræðir við fjölmila eftir leikinn.

Mynd: Fótbolti.net - Ómar Vilhelmsson

,,Við erum kannski ekkert ánægðir með frammistöðuna þannig séð. Við erum ánægðir með sigur og að halda hreinu. Við getum ekki tekið neitt af Eistlendingunum sem voru góðir og betri en ég bjóst við,\" sagði Heimir Hallgrímsson annar af þjálfurum Íslands eftir 1-0 sigurinn á Eistlendingum í vináttuleik á Laugardalsvelli í kvöld.
,,Þeir voru kraftmeiri en við. Það er eitthvað sem maður er óvanur að sjá, að andstæðingurinn er kraftmeiri og vill vinna návígi meira en við. Viðhorfið hjá okkur, sérstaklega í fyrri hálfleik, var ekki rétt. Ég er samt ánægður með sigur og að halda hreinu.\"
,,Það verður enginn stóri dómur felldur út frá þessum leik en ef við getum lært eitthvað af honum er það að þarf að mæta með rétt hugarfar í alla leiki. Ísland vinnur aldrei leiki með því að fara ekki með 100% hugarfar í þá. Við þjálfararnir þurfum að læra af því líka, það hlýtur eitthvað að hafa farið úrskeiðis í undirbúningnum hjá okkur.\"
Ísland gerði jafntefli við Austurríki á föstudag og náði síðan sigri gegn Eistum í dag.
,,Við vorum ánægðir með þessa viku, sérstaklega tímann fram að Austurríkis leiknum. Það var aðeins öðruvísi að koma til Íslands þar sem menn hitta fjölskyldurnar eftir langt keppnistímabil. Við reyndum að gefa smá frí og kannski erum við að súpa seyðið af því að menn komi ekki jafn undirbúnir í leikinn. Ekki eins undirbúningur og áður.\"
Theodór Elmar Bjarnason fékk að spreyta sig í hægri bakverðinum í dag og hann átti fínar rispur.
,,Hann var góður líka gegn Wales. Hann er að veita Birki samkeppni í hægri bakvarðarstöðunni og það er það sem við þurfum. Við þurfum samkeppni til að leikmennirnir og liðið bæti sig.\"
Hér að ofan má sjá fréttamannafund Heimis í heild.