Ethan Ampadu er búinn að skrifa undir nýjan fjögurra ára samning við Leeds United eftir að hafa verið lykilmaður undir stjórn Daniel Farke á nýliðnu tímabili.
Parang Marathe forseti Leeds tilkynnti fregnirnar í viðtali við Sky Sports.
Leeds keypti Ampadu úr röðum Chelsea fyrir tveimur árum síðan og kostaði velski landsliðsmaðurinn tæpar 10 milljónir punda.
Verðmæti hans hefur rokið upp á dvöl hans hjá Leeds þar sem hann er orðinn lykilmaður og kominn með fyrirliðabandið.
„Það er mjög mikilvægt fyrir okkur að semja við Ampadu áður en félagaskiptaglugginn opnar. Hann er alvöru leiðtogi jafnt innan sem utan vallar og við viljum sýna fótboltaheiminum að við viljum ekki missa okkar bestu leikmenn. Hann er frábær fyrirmynd og nákvæmlega sú tegund af karakter sem við viljum hafa innan okkar herbúða," sagði Marathe meðal annars.
Ampadu er 25 ára gamall og hefur spilað 126 leiki á tveimur árum hjá Leeds. Nýi samningurinn gildir til sumarsins 2030.
????? "???????? ???????????????? ???????? ???????????????? ????????????????????????????????"
— Leeds United (@LUFC) June 4, 2026
Watch our exclusive interview with Ethan after he signed a new contract until 2030




