Manchester City er í viðræðum við Nottingham Forest um kaupverð fyrir miðjumanninn eftirsótta Elliot Anderson eftir að Forest hafnaði rúmlega 70 milljón punda opnunartilboði í gær.
Fabrizio Romano er meðal þeirra sem greina frá því að ef Man City tekst ekki að landa Anderson ætlar félagið að reyna við Ítalann Sandro Tonali, sem er með tvö ár eftir af samningi hjá Newcastle.
Arsenal hefur einnig áhuga á Tonali og ólíklegt að Newcastle sé reiðubúið til að selja hann fyrir minna en 80 milljónir punda.
Forest vill rúmar 100 milljónir fyrir Anderson.
03.06.2026 21:56
Forest hafnaði risatilboði frá Manchester City


