Guðrún Arnardóttir varð bikarmeistari með Hammarby í Svíþjóð. Á myndinni með henni er Arnór Smárason, sem er yfirmaður fótboltamála hjá félaginu.
Það hefur myndast ákveðinn rígur á milli Íslendingafélaganna Hammarby og Häcken í sænska boltanum að undanförnum. Þessi lið mættust bæði í úrslitum Evrópubikarsins og sænska bikarsins. Häcken vann Evrópubikarinn og Hammarby vann bikarinn.
Í þessum liðum eru þrír leikmenn sem eru núna í íslenska landsliðshópnum; Fanney Inga Birkisdóttir og Thelma Karen Pálmadóttir spila með Häcken og Guðrún Arnardóttir leikur með Hammarby.
Í þessum liðum eru þrír leikmenn sem eru núna í íslenska landsliðshópnum; Fanney Inga Birkisdóttir og Thelma Karen Pálmadóttir spila með Häcken og Guðrún Arnardóttir leikur með Hammarby.
Thelma Karen var spurð út í þennan ríg sem er á milli liðanna í viðtali við Fótbolta.net í Kraká í vikunni.
„Fyrsti titillinn kom í Evrópubikarnum og það var mjög gaman. Við vorum óheppnar með bikarúrslitin. Við vorum á móti Hammarby í báðum úrslitaleikjum og það hafa verið skemmtilegar viðureignir," sagði Thelma.
„Ég myndi alveg segja að það sé rígur að myndast, þrír mjög erfiðir leikir búnir núna. Rígur, já."
Það er þó bara vinskapur í landsliðinu. „Guðrún er alveg æðisleg. Það er alltaf jafngaman að hitta hana. Við erum óvinir inn á vellinum (í Svíþjóð) en vinkonur utan hans."




