Spænsk stórlið vilja Cucurella - Liverpool heldur áfram að reyna við Diomande - Arsenal hyggst fá Rogers og Kroupi
Steig inn þegar markvörðurinn fór til Liverpool - „Lífið er geðveikt"
Karólína nýtur sín í æðislegri borg - „Smá Ítalí í mér"
18 ára að festa sig í sessi - „Þarf að drífa mig upp á herbergi að plana atriði"
Orðsporið farið stækkandi í Svíþjóð - „Þetta er annað heimili mitt"
Átti að vera árið hans Sölva - „Víkingur væri að berjast í efri hlutanum í Superligunni"
Ætlar að berjast við Árna um stöðuna - „Þurfti aðeins að klípa mig“
Venni: Fótboltinn breytist ekkert þó ég kaupi einhverja menn eða við spilum með ákveðnum hætti
Ray: Ég held að það sé bara bjart framundan hjá okkur
Kári Kristjáns: Mér líður bara ógeðslega vel hérna
Sjáðu rauða spjaldið á Brynjar Björn - „Síðasti séns að sjá þetta trix"
Sterkastur í 9. umferð - „Þetta var upp á líf og dauða fyrir okkur“
Maggi er ósáttur með mark Fylkis: Boltinn var aldrei inni
Heimir: Þurfum að setjast niður og læra af þessu
Sölvi Geir: Það fór smá um mann
Seinn á fund í gær en skoraði þrennu í kvöld: Fokking mikil sekt
Hemmi: Helvíti ódýr mörk og einstaklingsmistök
Siggi Höskulds: Leikmenn Stjörnunnar vilja greinilega hafa Jökul í starfi
Halli: Þurfum að hugsa okkar gang
Gunnar Heiðar: Ég vissi ekki að við ætluðum allt í einu að setja inn gjafaleik FM
Jökull vísaði í leikplan Arsenal þegar hann hrósaði Þór
banner
   þri 02. júní 2026 17:30
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Kraká
Steig inn þegar markvörðurinn fór til Liverpool - „Lífið er geðveikt"
Eimskip
Fanney Inga og Cecilía Rán Rúnarsdóttir á æfingu í dag.
Fanney Inga og Cecilía Rán Rúnarsdóttir á æfingu í dag.
Mynd: KSÍ - Arnar Laufdal
Fanney með Telmu Ívarsdóttur á góðri stundu.
Fanney með Telmu Ívarsdóttur á góðri stundu.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
„Það er alltaf gaman að koma í landsliðsverkefni og þetta er mjög mikilvægur leikur," sagði landsliðsmarkvörðurinn Fanney Inga Birkisdóttir í samtali við Fótbolta.net í dag.

Íslenska landsliðið er statt í Kraká í Póllandi þar sem framundan er mikilvægur leikur gegn Úkraínu í undankeppni HM.

„Maður á rosalega mikið af góðum vinkonum hér og alltaf góð stemning. Ég er mjög spenntur fyrir næstu dögum."

Stelpurnar eru í ágætis málum í riðlinum eftir 1-0 sigur gegn Úkraínu á Laugardalsvelli. Þær þurfa samt sem áður að fara í leikinn á föstudag og fá eitthvað úr honum.

„Þetta er mjög mikilvægur leikur fyrir bæði lið og mun kannski einkennast af því. Við viljum halda áfram að byggja á þeirri vegferð sem við erum á og vera betri með hverjum leik. Við viljum fá góða frammistöðu fyrst og fremst," sagði Fanney.

Lífið er geðveikt
Fanney er leikmaður Häcken sem er eitt besta liðið í Svíþjóð. Þar hefur gengið vel að undanförnu en liðið varð meðal annars Evrópubikarmeistari eftir sigur á Hammarby.

„Lífið er búið að vera geðveikt. Það er ógeðslega mikið af leikjum, ég held að við höfum spilað átta leiki í maí. Það er búið að vera ótrúlega gaman að keppa og spila, sérstaklega á mörgum vígstöðum. Þetta eru úrslitaleikir og mikilvægir leikir í deildinni. Það er mikið undir og mjög skemmtilegt."

Hvernig var að verða Evrópubikarmeistari?

„Það var frábær upplifun, ekkert smá gaman. Það er alltaf gaman að verða fyrstur að gera eitthvað," sagði Fanney en verið var að halda þessa keppni í fyrsta sinn.

Orðin aðalmarkvörður
Fanney er orðin aðalmarkvörður Häcken eftir að hafa verið varamarkvörður á síðustu leiktíð fyrir sænska landsliðsmarkvörðinn Jennifer Falk sem fór núna á láni til enska úrvalsdeildarfélagsins Liverpool.

„Ég er búin að vera aðalmarkvörður fyrri hluta tímabilsins sem var það sem ég lagði upp með þegar ég fór út. Það er búið að vera gaman og búið að ganga mjög vel," sagði Fanney. „Eins og maður sá þetta fyrst."

„Skilaboðin sem ég fékk voru að ég myndi vera aðalmarkvörður strax og sú sem var fyrir myndi fara. Svo setti fjölskyldulífið og svona strik í reikninginn hjá henni. Ég reyni að fókusa mitt og geri mitt þegar kallið kemur."

Varstu orðin eitthvað áhyggjufull með stöðuna á síðasta tímabili?

„Nei, það var fínt að taka þetta eina tímabil á bekknum. Ég held að ég hafi lært alveg ótrúlega mikið af því. Þó maður væri ekki að spila leiki þá var ég dugleg á æfingasvæðinu og gerði allt til að bæta mig þar. Fyrst hún fór þá gat ég stigið inn. Ef hún hefði ekki farið þá hefði ég leitað eitthvað annað," sagði Fanney sem hefur gripið tækifærið með báðum höndum.
Slapp
banner