Kyle Walker er nýlega búinn að leggja landsliðsskóna á hilluna eftir 96 landsleiki með Englandi og tvö silfurverðlaun á síðustu tveimur Evrópumótum.
Walker er 36 ára gamall og féll niður um deild með Burnley á nýliðnu úrvalsdeildartímabili. Hann var viðstaddur HM-upphitun The Sun á dögunum og tjáði sig um enska landsliðshópinn sem var valinn af Thomas Tuchel.
„Ég sé alltof marga leikmenn í varnarlínunni sem hafa ekki spilað nægilega vel á tímabilinu eða hafa verið að glíma við meiðsli upp á síðkastið. Ég set spurningarmerki við valið á varnarmönnum hópsins en ég ég er ekki þjálfarinn. Harry Maguire og Luke Shaw voru að eiga sitt besta tímabil í langan tíma með Manchester United og voru samt ekki valdir," sagði Walker. „Þeir áttu báðir að fara með í flugvélina."
Walker er ekki nægilega ánægður með valið á John Stones, fyrrum liðsfélaga sínum hjá Manchester City sem hefur verið að glíma við meiðsli nánast allt tímabilið, og Reece James sem hefur verið að glíma við erfið meiðslavandræði nánast allan ferilinn. Walker segist ekki efast um gæði Stones og James, en hann er ekki viss um að þeir séu nógu heilbrigðir fyrir heimsmeistaramótið.
Það vekur einnig furðu Walker að Morgan Gibbs-White, sóknartengiliður Nottingham Forest, hafi ekki verið valinn í lokahópinn. Eberechi Eze frá Arsenal, Morgan Rogers frá Aston Villa og Jude Bellingham eru leikmenn landsliðshópsins sem geta leyst stöðuna í holunni fyrir aftan Harry Kane af hólmi.
„Ég hefði líklega tekið Gibbs-White með, hann er búinn að vera stórkostlegur með Forest."
Walker ræddi einnig um fyrrum liðsfélaga sinn Phil Foden sem var ekki valinn í hópinn og sagði að viðbrögð leikmannsins á þessum tímapunkti eru það sem skiptir öllu máli.
„Svona er fótboltinn, hvað getur maður gert? Ætlar maður að setjast út í horn og gráta eða bregst maður við með að leggja meiri vinnu á sig til að verða betri?"
Walker tjáði sig að lokum um þreytu ensku landsliðsmannanna og þann mikla hita sem þeir munu vera að spila í á mótinu.
„Leikmenn verða ekki þreyttir, ég heyri mjög mikið um þetta en ég er ekki sammála. Þú getur verið þreyttur andlega en ef þú nærð að láta heilann segja við fótleggina að þeir geta hlaupið, þá geta þeir hlaupið. Þú ert að spila fyrir þjóð þína á stórmóti, þetta er draumur allra stráka og stelpna í landinu. Þú heldur áfram að hlaupa."
22.05.2026 09:02
Svona er HM hópur Englands - Umdeilt val Tuchel
Allir 104 leikirnir á HM verða í beinni á RÚV.
Samfelldar útsendingar frá því síðdegis og fram á nótt.
Kvöldin verða geggjuð í sumar!



