Króatar brutu ísinn og klúðruðu dauðafæri

Ante Budimir skoraði sjöunda landsliðsmark sitt

Mynd: EPA

Króötum tókst að brjóta niður varnarmúr Panama snemma í síðari hálfleik eftir slakan fyrri hálfleik.
Fyrri hálfleikurinn var einn sá tíðindaminnsti á mótinu til þessa. Lítið var að frétta og Króatar sendu endalaust af fyrirgjöfum inn í teiginn án þess að skapa verulega hættu.
Króatar náðu loks að brjóta ísinn á 54. mínútu. Josip Stanisic fór í utanáhlaupið á hægri kantinum, sendi hnitmiðaða fyrirgjöf í gegnum teiginn og á fjærstöngina þar sem Ante Budimir þurfti aðeins að setja boltann í opið markið.
Sjáðu markið hér
Strax í næstu sókn keyrðu Króatar fram í skyndisókn. Marco Pasalic var kominn einn gegn markverði og ætlaði að vera svalur með því að vippa boltanum yfir hann, en setti hann beint í fangið á honum. Pasalic hefði getað lagt boltann til hægri á Martin Baturina en ákvað að fara sjálfur og klúðraði færinu illa.
Panama-menn eru að lifna við og hafa verið að hóta jöfnunarmarki á síðustu mínútum. Sjáum hvað til setur!
Sjáðu klúðrið hér