Thomas Tuchel landsliðsþjálfari Englands hefur staðfest leikmannahópinn sem fer á HM. Mikið er rætt og ritað um valið hjá Tuchel.
Ekkert pláss er fyrir Trent Alexander-Arnold hjá Real Madrid en áður hafði verið greint frá því að Harry Maguire, Phil Foden og Cole Palmer yrðu ekki í hópnum.
Lewis Hall, Morgan Gibbs-White, Luke Shaw, Levi Colwill, Fikayo Tomori, Adam Wharton og Myles Lewis-Skelly eru meðal annarra nafna sem missa af því að vera valdir.
Ekkert pláss er fyrir Trent Alexander-Arnold hjá Real Madrid en áður hafði verið greint frá því að Harry Maguire, Phil Foden og Cole Palmer yrðu ekki í hópnum.
Lewis Hall, Morgan Gibbs-White, Luke Shaw, Levi Colwill, Fikayo Tomori, Adam Wharton og Myles Lewis-Skelly eru meðal annarra nafna sem missa af því að vera valdir.
Ollie Watkins, sem hjálpaði Aston Villa að vinna Evrópudeildina, er í hópnum líkt og Ivan Toney sem spilar fyrir Al-Ahli í Sádi-Arabíu. Hann er vanur því að spila í hita og er einnig afbragðs vítaskytta. Þeir verða varaskeifur fyrir fyrirliðann Harry Kane.
Noni Madueke, leikmaður Englandsmeistara Arsenal, er í hópnum með liðsfélögum sínum Bukayo Saka, Eberechi Eze og Declan Rice. Þá er John Stones , varnarmaður Manchester City, valinn þrátt fyrir að hafa verið mikið á meiðslalistanum á tímabilinu.
Króatía, Gana og Panama eru í riðli með Englandi á HM.
Markverðir: Jordan Pickford (Everton), Dean Henderson (Crystal Palace), James Trafford (Manchester City)
Varnarmenn: Reece James (Chelsea), Tino Livramento (Newcastle), Marc Guehi (Manchester City), Ezri Konsa (Aston Villa), John Stones (Manchester City), Jarell Quansah (Bayer Leverkusen), Nico O'Reilly (Manchester City), Dan Burn (Newcastle), Djed Spence (Tottenham)
Miðjumenn: Declan Rice (Arsenal), Elliot Anderson (Nottingham Forest), Jude Bellingham (Real Madrid), Jordan Henderson (Brentford), Morgan Rogers (Aston Villa), Kobbie Mainoo (Manchester United), Eberechi Eze (Arsenal)
Sóknarmenn: Harry Kane (Bayern Munich), Ivan Toney (Al-Ahli), Ollie Watkins (Aston Villa), Bukayo Saka (Arsenal), Noni Madueke (Arsenal), Marcus Rashford (Barcelona), Anthony Gordon (Newcastle)
Come Together. pic.twitter.com/BAsCH4YCjx
— England (@England) May 22, 2026
21.05.2026 17:17
Foden ekki valinn í HM hópinn
21.05.2026 18:52
Palmer ekki heldur með á HM
21.05.2026 21:32
Ivan Toney fer með á HM
Allir 104 leikirnir á HM verða í beinni á RÚV.
Samfelldar útsendingar frá því síðdegis og fram á nótt.
Kvöldin verða geggjuð í sumar!

