HM: Króatar ekki sannfærandi en gerðu nóg - Panama úr leik

Ante Budimir fagnar marki sínu

Mynd: EPA

Úr leiknum í nótt

Mynd: EPA

Ante Budimir fagnar marki sínu

Mynd: EPA
Króatía 1 - 0 Panama
1-0 Ante Budimir ('54 )
1-0 Ante Budimir ('54 )
Króatía náði í sín fyrstu stig á HM í nótt þegar liðið marði 1-0 sigur á Panama í L-riðli á BMO-leikvanginum í Toronto í Kanada.
Það var ekki mikið að gerast í fyrri hálfleik en Panama var þó óvænt með yfirhöndina og líklegra liðið.
Besta færið átti Jose Rodríguez á 23. mínútu þegar hann skallaði boltann í átt að marki en Dominik Livakovic varði í þverslána.
Það var í raun eina færi Panama í fyrri hálfleik. Martin Baturina átti besta færi Króata undir lok hálfleiksins þegar hann lét vaða af um 25 metrum en Orlando Mosquera varði.
Króatar komu sterkari inn í síðari hálfleik og sigurmarkið kom á 54. mínútu. Josip Stanisic, leikmaður Bayern München, tók framhjáhlaup á hægri vængnum áður en hann sendi frábæra fyrirgjöf á fjærstöngina. Þar var Ante Budimir mættur og stýrði boltanum í netið.
Marco Pasalic átti að gera út um leikinn nokkrum mínútum síðar þegar Króatar unnu boltann á eigin vallarhelmingi og sendu hann fram á Pasalic, sem var sloppinn einn í gegn. Hann ætlaði að stela fyrirsögnunum með því að vippa yfir Mosquera, en markvörðurinn sá við honum og varði örugglega.
Slakt hjá Pasalic, sem var með Baturina hægra megin við sig. Illa farið með gott færi og það beit Króata næstum í rassinn.
Panama setti meiri þunga í sóknarleikinn eftir þetta og ógnaði nokkrum sinnum. Livakovic varði í tvígang og var besti maður Króata í leiknum, ekki í fyrsta sinn sem hann sýnir takta sína á stórmóti.
Það mátti sjá á Króötum að spennan var farin að segja til sín á lokamínútunum en þeim tókst að halda út og merja fram mikilvægan sigur.
Sigurinn var gríðarlega mikilvægur upp á framhaldið. Króatía er í 3. sæti með þrjú stig fyrir lokaumferðina, þar sem Gana verður andstæðingurinn. Panama er úr leik og mætir Englandi í lokaleiknum.