Fotbolti.net
04.07.05 - 14:49
Magnús Már Einarsson

Al Habsi til Bolton (Staðfest)

Jaaskelainen sem hér er í baráttunni mun fá samkeppni um markvarðarstöðuna.

Jaaskelainen sem hér er í baráttunni mun fá samkeppni um markvarðarstöðuna.

Canon
Ali Al Habsi markvörður norska liðsins Lyn hefur gert þriggja og hálfs árs samning við Bolton. Habsi sem er 23 ára kemur frá Óman en hann mun klára tímabilið með Lyn og koma svo til Bolton í október.
Habsi mun vera fyrsti markvörðurinn frá Asíu í ensku úrvalsdeildinni en hann mun berjast um markvarðarstöðuna við Jussi Jaaskelainen hjá Bolton.

Habsi sem var markvörður ársins í norsku deildinni í fyrra sagði: ,,Draumur minn hefur loksins orðið að veruleika. Ég hef alltaf viljað spila í úrvalsdeildinni og það er mjög sérstakt að Bolton vilji mig til að spila fyrir sig. "
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.