04.07.05 - 15:05
Magnús Már Einarsson
Abbiati lánaður til Genoa (Staðfest)




Christian Abbiati varamarkvörður AC Milan hefur verið lánaður til Genoa út næsta tímabil. Genoa sem er nýbúið að vinna sér sæti í Serie A getur svo keypt Abbiati á 2,2 milljónir punda næsta sumar.
Abbiati hefur viljað komast frá AC Milan til að fá að spila. Hann hefur verið á eftir Dida í goggunarröðinni en hann vonast til að ná að sanna sig með Genoa og vinna sér inn sæti í landsliðshópi Ítala fyrir HM 2006.
Abbiati var orðaður við lið eins og Palermo, Arsenal og Fiorentina en hann hefur ákveðið að leika með Genoa á næsta tímabili.
Abbiati var orðaður við lið eins og Palermo, Arsenal og Fiorentina en hann hefur ákveðið að leika með Genoa á næsta tímabili.
