04.07.05 - 15:14
Magnús Már Einarsson
Carter til WBA (Staðfest)

Darren Carter er hér í baráttunni.

Darren Carter er hér í baráttunni.

WBA hefur keypt miðjumanninn Darren Carter frá Birmingham á 1,5 milljónir punda. Carter sem er 21 árs skrifaði undir eftir að hafa staðist læknisskoðun í dag. Steve Watson mun væntanlega einnig verða leikmaður WBA á næstunni en hann er án samnings eftir að hafa yfirgefið Everton.
Bryan Robson stjóri WBA sagði um Carter ,,Ég er mjög ánægður með að við höfum bætt Darren í hópinn. Hann er mjög efnilegur ungur leikmaður og hann á framtíðina fyrir sér."
Robson vonast til að vita í lok vikunnar hvort kantmaðurinn Kieran Richardson verði áfram í láni hjá WBA frá Manchester United. Richardson stóð sig vel með WBA á seinni hluta síðasta tímabils og hann skoraði einnig tvö mörk fyrir enska landsliðið í leik gegn Bandaríkjunum í maí. Fari Richardson eitthvert á láni verður það til WBA að sögn Robson.