04.07.05 - 15:23
Magnús Már Einarsson
Yakubu fékk atvinnuleyfi og fór til Boro (Staðfest)




Nígeríski framherjinn Yakubu Aiyegbeni hefur fengið atvinnuleyfi á Englandi og hefur því gert 5 ára samning við Middlesbrough en hann kemur til liðsins frá Portsmouth á 7,5 milljónir punda.
Yakubu var hafnað um atvinnuleyfi fyrir skömmu þar sem hann hefur ekki leikið 75% landsleikja Nígeríu á síðustu tveimur árum. Middlesbrough áfrýjaði þessari ákvörðun og í dag fékk Yakubu atvinnuleyfi.
Yakubu er sterkur framherji en hann hefur skorað 43 mörk fyrir Portsmouth frá því að hann kom til liðsins frá Maccabi Haifa fyrir tveimur og hálfu ári síðan.
Yakubu er sterkur framherji en hann hefur skorað 43 mörk fyrir Portsmouth frá því að hann kom til liðsins frá Maccabi Haifa fyrir tveimur og hálfu ári síðan.
