04.07.05 - 17:30
Magnús Már Einarsson
FH kaupir Davíð Þór frá Lilleström (Staðfest)

Davíð Þór í leik með U-21 árs landsliði Íslendinga.

Mynd: Fótbolti.net - Daníel Rúnarsson

U-21 árs landsliðsmaðurinn Davíð Þór Viðarsson mun leika með FH út þetta tímabil en þetta staðfesti Guðmundur Árni Stefánsson formaður knattspyrnudeildar félagsins við Fótbolti.net nú rétt í þessu.
Davíð Þór sem er miðjumaður hefur leikið alla 9 leiki FH í Landsbankadeildinni í sumar en hann kom til liðsins rétt fyrir Íslandsmót þegar að í ljós kom að hann var ólöglegur með Lilleström þangað til 1.júlí en þá átti hann að fara aftur til liðsins frá Fimleikafélaginu.
Davíð Þór sem var í láni hjá FH á síðustu leiktíð æfði af krafti með Lilleström á undirbúningstímabilinu en þegar að norska deildin var komin af stað kom í ljós að hann var ekki löglegur með Lilleström og að hann gæti ekki fengið leikheimild aftur með liðinu fyrr en 1.júlí.
Davíð ákvað að ganga til liðs við FH fremur en að æfa bara með Lilleström og spila ekkert. Hann sá ekki á eftir því og vildi vera áfram hjá FH sem og liðið að halda honum nú eftir 1.júlí enda hefur hann spilað vel í sumar. Eftir samningaviðræður um helgina náðu liðin svo samkomulagi. Að sögn Guðmundar Árna borgar FH samninginn upp en reyndar fer mest öll fjárhæðinn upp í skuld sem að Lilleström skuldaði FH ennþá.
Guðmundur Árni vonast til að Davíð muni gera 2-3 ára samning við FH á næstunni en hann sagði það svo vera annað mál hvort hann færi aftur erlendis í haust.