04.07.05 - 18:54
Magnús Már Einarsson
Eleftheropoulos til AC Milan (Staðfest)




AC Milan hefur nælt sér í gríska markvörðinn Dimitrios Eleftheropoulos. Þessum 28 ára markverði er ætlað að berjast við Dida um byrjunarliðssæti hjá AC Milan en eins og við greindum frá í dag þá hefur AC lánað Christian Abbiati til Genoa.
Eleftheropoulos sem fæddist í Aþenu kemur frítt til AC Milan en hann lék með Messina á síðustu leiktíð. Samningur hans við liðið er hinsvegar runninn en alls lék hann 10 leiki fyrir liðið.
