Arsenal hlustar á tilboð í Jesus - Tottenham reynir við Gallagher - Liverpool orðað við varnarmann Frankfurt
   þri 04. júlí 2023 09:52
Elvar Geir Magnússon
Stöð 2 Sport tekur yfir sýningarrétt Viaplay á landsleikjum
Landsliðið er komið á Stöð 2 Sport.
Landsliðið er komið á Stöð 2 Sport.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Stöð 2 Sport og Viaplay hafa gert með sér samstarfssamning sem meðal annars felur í sér að Stöð 2 Sport tekur yfir sýningarrétt á öllum leikjum íslenska karlalandsliðsins í fótbolta.

Þá tekur Stöð 2 Sport yfir framleiðslu á innlendri dagskrárgerð í kringum þá viðburði sem Viaplay er með réttinn á.

Fréttatilkynning:

Sýn gerir víðtækan samstarfssamning við Viaplay Group
Sýn og Viaplay hafa gert tímamótasamstarfssamning sem felur í sér einkarétt á sölu Viaplay með vörum Vodafone og Stöðvar 2 og tekur samningurinn gildi strax í ágúst.

Stöð 2 Sport mun um leið taka við sýningarrétti á öllum leikjum íslenska karlalandsliðsins í knattspyrnu til næstu ára og taka að sér alla framleiðslu á umfjöllun og umgjörð í kringum leikina. Fyrstu leikirnir sem falla undir samstarfið verða leikir Íslands í undankeppni EM 2024 gegn Lúxemborg ytra þann 8. september og Bosníu og Hersegóvínu á Laugardalsvelli þremur dögum síðar. Leikirnir verða sýndir í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport og í streymi hjá Viaplay.

Stöð 2 Sport mun taka yfir framleiðslu á allri innlendri dagskrárgerð tengdri því íþróttaefni sem Viaplay hefur upp á að bjóða á Íslandi svo sem Meistaradeild Evrópu, Formúlu 1, Championshipdeildinni og Carabao-bikarnum í Englandi, þýska fótboltanum, þýska handboltanum, landsleikjum í undankeppni EM karla, stórmótum í pílukasti og meira til.

Samhliða þessum breytingum verður ný línuleg sjónvarpsrás kynnt til leiks til að hámarka upplifun áskrifenda á íþróttaefni Viaplay.

Yngvi Halldórsson, forstjóri Sýnar: „Það er virkilega ánægjulegt að við höfum náð þessu tímamóta samkomulagi við streymisveituna Viaplay. Við fögnum því að leikir karlalandsliðs Íslands séu komnir heim á Stöð 2 Sport. Við leggjum áherslu á að bjóða viðskiptavinum okkar fjölbreytt framboð af bæði innlendri og erlendri afþreyingu og er Viaplay með íþrótta- og sjónvarpsefni sem að fellur vel að vöruframboði Vodafone og Stöðvar 2.
Samstarfið undirstrikar styrkleika okkar í að mæta þörfum viðskiptavina hvað varðar framúrskarandi upplifun, persónulegri þjónustu og betra aðgengi að hágæða sjónvarpsefni. Með samningnum við Viaplay munum við geta boðið viðskiptavinum Vodafone internet, farsíma ásamt meiri fjölbreytni í afþreyingu og íþróttaefni. Við hlökkum til samstarfsins og til þess að kynna betur þjónustuna fyrir viðskiptavinum.“


Mikael Olsson, yfirmaður viðskiptaþróunar hjá Viaplay Group:„Undanfarin þrjú ár höfum við fest Viaplay í sessi sem efnisveitu á Íslandi, sérstaklega með tilliti til beinna útsendinga á íþróttaviðburðum. Við teljum það náttúrulegt skref í framhaldinu að hefja samstarf við fremsta fjölmiðla- og fjarskiptafyrirtæki landsins. Sameining íþróttarétta, íþróttaframleiðslu og það að hafa Viaplay sem viðbót við áskriftarpakka Vodafone og Stöðvar 2 mun auka dreifingu veitunnar til muna og teljum við að samstarfið mun skila enn meiri ávinningi af fjárfestingum okkar til þessa.”

Nánari upplýsingar verða kynntar síðar
Athugasemdir
banner
banner
banner