21.11.26 - 14:07
Brynjar Ingi Erluson
Stefán Teitur skoraði í endurkomusigri

Mynd: Fótbolti.net - Helgi Þór Gunnarsson

Stefán Teitur Þórðarson sneri aftur á völlinn eftir meiðslin sem hann varð fyrir í síðasta landsliðsverkefni og átti stóran þátt í 2-1 endurkomusigri sinna manna með því að skora jöfnunarmarkið.
Miðjumaðurinn meiddist í 5-0 stórsigri Íslands á Búlgaríu í fyrri leik landsliðsverkefnisins og missti af seinni leiknum gegn Lúxemborg, þar sem Ísland tryggði sér sigur í sínum riðli í C-deildinni.
Stefán náði þó góðum bata á þeim dögum sem liðnir eru og var á bekknum hjá Hannover í dag. Hann þurfti hins vegar að koma inn á eftir aðeins átta mínútna leik þegar Benjamin Kallman meiddist.
Gestirnir í Greuther Furth komust yfir á 34. mínútu en Stefán jafnaði metin á þeirri 57. og kom Hannover aftur inn í leikinn.
Stefán lék sem hálfgerð nía og skoraði gott framherjamark. Boltinn fór yfir vörn Greuther Furth og barst til Marcel Hartel, sem kom honum fyrir markið þar sem Stefán var mættur á nærstöngina og stýrði honum í nærhornið.
Þetta var annar leikurinn í röð sem Stefán skorar fyrir Hannover, en liðið vann að lokum 2-1 og fór með sigrinum upp í áttunda sæti deildarinnar með 15 stig.
Hægt er að sjá mark Stefáns hér fyrir neðan.
Sjáðu markið hér