21.11.26 - 13:38
Brynjar Ingi Erluson
Arsenal endurvekur áhuga sinn á Nico Williams

Mynd: EPA

Mynd: EPA
Englandsmeistarar Arsenal hafa endurvakið áhuga sinn á spænska vængmanninum Nico Williams.
Þessi 24 ára gamli leikmaður er uppalinn hjá Athletic Bilbao og hefur leikið með félaginu allan sinn feril.
Arsenal hafði mikinn áhuga á að fá Williams á síðasta ári, en þá ákvað hann að vera áfram hjá Athletic.
TeamTalk segir Arsenal nú hafa endurvakið áhugann og hefur Andrea Birta, yfirmaður íþróttamála hjá félaginu, þegar sent fyrirspurn til Athletic. Mikel Arteta, stjóri Arsenal, er einnig sagður mjög áhugasamur um að fá Williams til liðsins.
Williams er með 84 milljóna punda riftunarákvæði í samningi sínum og því ljóst að Arsenal þyrfti að greiða háa upphæð fyrir hann.
Athletic liggur heldur ekkert á að selja hann enda skrifaði Williams undir tíu ára samning á síðasta ári.
Bayern München fylgist einnig með stöðu Williams, en Arsenal er sömuleiðis að skoða aðra kosti og eru Antonio Nusa, Kevin Schade, Endrick og Alex Baena á meðal þeirra leikmanna sem félagið hefur augastað á.