20.11.26 - 22:30
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Óvissa með framtíð Van Dijk - „Þá mun ég kveðja"

Mynd: EPA

Mynd: EPA
Virgil van Dijk veit ekki hvort hann verði áfram hjá Liverpool næsta sumar en samningur fyrirliðans rennur út næsta sumar.
„Aðalatriðið fyrir mér er að mér líður vel og hugsa vel um mig og á mörg ár eftir að mínu mati," sagði Van Dijk við Sky Sports.
„Það er ósatt ef einhver segist vita eitthvað um framtíð mína því ég hef ekki hugmynd. Ég er rólegur því ég einbeiti mér að því sem ég get stjórnað og það er Manchester United leikurinn núna. Svo einbeitum við okkur að Meistaradeildinni og sjáum til hvað gerist á næsta ári."
Van Dijk hefur unnið úrvalsdeildina tvisvar með Liverpool, Meistaradeildina einu siinni, enska bikarinn einu sinni og deildabikarinn tvisvar. Hann hefur verið fyrirliði liðsins frá 2023.
„Þetta hefur verið frábært ferðalag, næstum tíu ár í sumar og þetta hefur verið stór hluti af lífinu og ég mun vera þakklátur til æviloka fyrir allt sem gerðist," sagði Van Dijk.
„Við sjáum til hvort ég framlengi. Ef ekki þá mun ég kveðja í sumar. Það yrði tilfinningaríkt fyrir mig og fjölskylduna því þetta hefur verið stórkostlegur tími. En ég vil ekki horfa of langt fram í tímann."