04.07.26 - 16:01
Brynjar Ingi Erluson
Besta deildin: Sautján ára með sigurmarkið í endurkomu Blika

Þór Andersen Willumsson er þriðji bróðirinn til að skora fyrir Blika

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

ÍA 1 - 2 Breiðablik
1-0 Steinar Þorsteinsson ('32 )
1-1 Ágúst Orri Þorsteinsson ('65 )
1-2 Þór Andersen Willumsson ('80 )
Lestu um leikinn
1-0 Steinar Þorsteinsson ('32 )
1-1 Ágúst Orri Þorsteinsson ('65 )
1-2 Þór Andersen Willumsson ('80 )
Lestu um leikinn
Breiðablik vann 2-1 endurkomusigur á ÍA í 13. umferð Bestu deildar karla á ELKEM-vellinum á Akranesi í dag.
Skagamenn voru hættulegri aðilinn í fyrri hálfleik. Steinar Þorsteinsson átti fína tilraun í stöngina áður en Ómar Björn Stefánsson komst í dauðafæri, en Blikar náðu að bjarga á síðustu stundu.
Markið lá í loftinu og það kom aðeins nokkrum mínútum síðar. Ómar Björn átti þá frábæran undirbúning og Steinar þakkaði fyrir sig með því að setja boltann í netið.
Hinn 15 ára gamli Arnar Bjarki Gunnleifsson var hársbreidd frá því að jafna metin þegar hann sneri Erik Tobias Sandberg af sér, en skot hans fór í stöngina. Arnar hefur verið heitur með Blikum og frammistaða hans hefur nú þegar tryggt honum samning hjá danska stórveldinu Bröndby.
Blikar fóru marki undir inn í hálfleikinn en jöfnuðu þegar tæpur hálftími var til leiksloka. Arnar Bjarki las þá frábærlega sendingu til baka, náði til boltans og kom honum á Ágúst Orra Þorsteinsson, sem skoraði.
Þegar um tíu mínútur voru eftir kom Þór Andersen Willumsson inn á sem varamaður hjá Blikum og hann þurfti ekki langan tíma til að láta til sín taka.
Dagur Örn Fjeldsted átti laglegan bolta á Þór, sem stangaði boltann í netið í sinni fyrstu snertingu og tryggði Blikum sigurinn. Þetta var fyrsta mark Þórs í deildinni og það í aðeins öðrum deildarleik hans með Blikum.
Það er nóg af hæfileikum í þeirri fjölskyldu, en Þór er yngri bróðir landsliðsmannanna Willums Þórs og Brynjólfs Andersen. Faðir þeirra er auðvitað fyrrum þjálfarinn og leikmaðurinn Willum Þór Þórsson.
Skagamenn fengu tækifæri til að næla í stig. Viktor Jónsson komst í dauðafæri en setti boltann beint á Anton Ara Einarsson í markinu og Guðmundur Þórarinsson átti þá hörkuskot rétt yfir.
Jöfnunarmarkið kom hins vegar aldrei og Blikar fögnuðu sætum útisigri. Þeir eru í 4. sæti með 22 stig en ÍA er í 8. sæti með 15 stig. Skagamenn hafa nú tapað þremur leikjum í röð.