Frægur plötusnúður að gefa út lag með Haaland

Erling Braut Haaland gæti komist á topplistann á Spotify á næstu vikum

Mynd: EPA

Norski plötusnúðurinn Kygo er að fara gefa út lag með samlanda sínum Erling Braut Haaland á næstunni, en hann gaf stiklu út á samfélagsmiðlum í dag.

TENGT EFNI
Getur ekki lofað Haaland í stúkunni á Akranesi - „Fyndið að sjá lagið aftur á flugi núna“
Kygo varð frægur árið 2013 fyrir endurhljóðblöndur af mörgum þekktum lögum og er í dag einn þekktasti plötusnúður og pródúsent í bransanum.
Haaland hefur á sama tíma verið að raða inn mörkum með Manchester City og norska landsliðinu.
Norðmenn mæta Brasilíu í 16-liða úrslitum heimsmeistaramótsins um helgina og Kygo hefur lofað að gefa út gamla lagið sem Haaland gerði með Flow Kingz, en í nýrri útgáfu.
Haaland var hluti af rappsveitinni Flow Kingz hér árum áður og kallaði sig Lyng. Sveitin gaf út lagið „Kygo Jo“, enda miklir aðdáendur norska plötusnúðsins.
Kygo hefur nú gert nýja útgáfu af laginu og segist ætla að gefa hana út ef Haaland skorar gegn Brasilíu. Þetta greindi hann frá á samfélagsmiðlum.
Það er skemmtileg tilviljun, því Erik Tobias Sandberg, sem var með Haaland í unglingalandsliðum Noregs og í rappsveitinni Flow Kingz, ræddi einmitt lagið, Haaland og norska landsliðið í viðtali við Fótbolta.net í gær.
„Það er fyndið að sjá lagið allt í einu fara aftur á flug á meðan HM stendur yfir, tæpum tíu árum eftir að við tókum það upp,“ sagði Sandberg við Fótbolta.net, en hér fyrir neðan má síðan sjá bút úr nýju útgáfunni með Kygo.