Fotbolti.net
03.07.26 - 17:20
Kári Snorrason

Getur ekki lofað Haaland í stúkunni á Akranesi - „Fyndið að sjá lagið aftur á flugi núna“

Erik Sandberg og Haaland hafa þekkst lengi.

Erik Sandberg og Haaland hafa þekkst lengi.

Canon

Mynd: EPA

Norðmaðurinn Erik Tobias Sandberg, varnarmaður ÍA, fylgist náið með norska landsliðinu sem er að gera góða hluti á heimsmeistaramótinu um þessar mundir.

Liðið vann Fílabeinsströndina í 32-liða úrslitum í vikunni og mætir Brasilíu í 16-liða úrslitum á sunnudag.

Erik var lengi vel í yngri landsliðum Noregs og þar var hann mikið með Erling Haaland. Fótbolti.net ræddi við hann um Noreg á HM og vináttu hans og Haaland.
Missti allan styrk og hreyfigetu í hendinni eftir sjaldgæf taugameiðsli
TENGT EFNI

Missti allan styrk og hreyfigetu í hendinni eftir sjaldgæf taugameiðsli

Ágætis möguleikar gegn Brössum
Við höfum ekki spilað á HM síðan 1998, þannig að þetta er stór stund fyrir okkur. Það hefur líka verið mjög gaman að sjá hversu vel Norðmenn hafa verið að spila,“ segir Erik og heldur áfram.

„Þeir eru að spila mjög góðan bolta og öll þjóðin er í miklu HM stuði þessa dagana. Brasilíuleikurinn verður mjög spennandi og ég tel okkur eiga ágætis möguleika.“

Hrifinn af róðrinum
Norsku stuðningsmennirnir á HM hafa vakið athygli fyrir 'róðurinn' sem er þeirra útgáfa af Víkingaklappinu. Í norsku útgáfunni þykjast stuðningsmennirnir vera að róa víkingaskipi.

„Það er mjög gaman að sjá hvað 'róðurinn', sem er innblásinn af íslenska Víkingaklappinu, er að vekja mikla athygli,“ segir Erik en liðið fagnar með því að róa með stuðningsmönnum eftir leik.

Norsku leikmennirnir réru með fólkinu í stúkunni
TENGT EFNI

Norsku leikmennirnir réru með fólkinu í stúkunni



Æskuvinur Haaland
Erik og Erling Haaland, einn besti framherji heims, hafa verið vinir lengi. „Við erum enn í sambandi af og til, en eðlilega hefur það orðið sjaldnar með árunum. Við höfum þekkst lengi og sáumst auðvitað mun oftar þegar við spiluðum saman með yngri landsliðum Noregs.“

Eru einhverjar líkur á að hann heimsæki þig og mæti á leik með ÍA.„Hann er ansi upptekinn maður þessa dagana, svo því miður get ég ekki lofað því að hann komi í heimsókn á Akranes á næstunni.“

Vissi að hann yrði góður en bjóst enginn við þessu
Sást það snemma hversu langt Haaland myndi ná?

„Við vissum öll frá unga aldri að Erling ætti eftir að verða mjög góður leikmaður, en ég held að enginn hafi búist við því að hann yrði besti framherji heims. Það hefur verið ótrúlegt að fylgjast með ferðalaginu hans og ég er virkilega ánægður fyrir hans hönd,“ segir sá norski.

Fyndið að sjá lagið fara aftur á flug
Erik, Haaland og Erik Botheim, leikmaður Malmö, stofnuðu saman hljómsveitina Flow Kingz. Þremenningarnir gáfu út lagið Kygo Jo árið 2016.

Lagið hefur notið mikilla vinsælda eftir upprisu Haaland en þeir gáfu út lagið þegar þeir voru sextán ára. „Það er fyndið að sjá lagið allt í einu fara aftur á flug á meðan HM stendur yfir, tæpum tíu árum eftir að við tókum það upp,“ segir Erik.

Lagið hefur verið spilað yfir 17 milljón sinnum á YouTube og hefur einnig farið í mikla dreifingu á samfélagsmiðlum. Hægt er að hlusta á lagið hér að neðan.

Spenntur fyrir norska liðinu.

Spenntur fyrir norska liðinu.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Þríeykið Flow Kingz eftir að Haaland skrifaði undir hjá Dortmund.

Þríeykið Flow Kingz eftir að Haaland skrifaði undir hjá Dortmund.

Canon

Mynd: Instagram

Getur ekki lofað Haaland uppi í stúku á Skaganum.

Getur ekki lofað Haaland uppi í stúku á Skaganum.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Segir mikla stemningu í Noregi.

Segir mikla stemningu í Noregi.

Canon

Mynd: EPA

Fyndið að sjá lagið fara aftur á flug núna.

Fyndið að sjá lagið fara aftur á flug núna.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.