Fotbolti.net
04.07.26 - 03:31
Jóhann Þór Hólmgrímsson

HM: Mark dæmt af Luis Díaz en það kom ekki að sök

HM: Mark dæmt af Luis Díaz en það kom ekki að sök
Canon

Mynd: EPA

Kólumbía 1 - 0 Gana
1-0 Jhon Arias ('14 )
Kólumbía varð síðasta liðið til að tryggja sér sæti í 16-liða úrslitum þegar liðið lagði Gana í 32-liða úrslitum í nótt.

Kólumbía vildi fá vítaspyrnu snemma leiks þegar Luis Díaz féll í teignum eftir baráttu við Marvin Senaya en ekkert dæmt. Senaya meiddist um leið og þurfti að fara af velli.

Jhon Cordoba þurfti einnig að fara af velli hjá Kólumbíu stuttu áður. Luis Suarez kom inn á í hans stað og hann lagði upp mark á Jhon Arias á 14. mínútu.

Kólumbía var með yfirhöndina í fyrri hálfleik en mörkin urðu ekki fleiri.

Luis Diaz kom boltanum í netið eftir fyrirgjöf frá Jefferson Lerma en Díaz var rangstæður og markið dæmt af. Diaz komst í færi strax í kjölfarið en Lawrence Ati Zigi í marki Gana varði vel frá honum.

Leikmenn Gana gerðu sig varla líklega til að jafna metin og Kólumbía fór með sigur af hólmi. Liðið mætir Sviss í 16-liða úrslitunum.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.